Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sunnlenskar vörur verðlaunaðar

Íslandsmeistarakeppnin í matarhandverki, Askurinn, fór fram á Hvanneyri um síðastliðna helgi. Keppt var í 10 flokkum og bárust 133 matvörur og drykkir.

Íslandsmeistarakeppnin í matarhandverki, Askurinn, fór fram á Hvanneyri um síðastliðna helgi. Keppt var í 10 flokkum og bárust 133 matvörur og drykkir.

Að sjálfsögðu voru sunnlenskar vörur meðal keppenda en þrjú sunnlensk fyrirtæki áttu vörur á verðlaunapalli. Það voru vörur frá Á Ártanga í Grímsnes- og Grafningshreppi, Sólsker á Höfn og Tariello á Hellu.

Nánar má sjá lista yfir verðlaunahafa og flokka á vef Matarauðs Íslands.

Bakhjarlar keppninnar eru Matís og Matarauður Íslands en að þessu sinni fór afhending verðlaunanna fram á matarhátíð Matarauðs Vesturlands sem haldin var af Markaðsstofu Vesturlands í  húsakynnum Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri. Það er greinilega mikill áhugi og gróska í íslensku matarhandverki og liggja þar fjölmörg tækifæri í vöruþróun og nýjum vörum.

Á Ártanga - vörur