Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Skráning hafin á MANNAMÓT 2019

Markaðsstofa Suðurlands vekur athygli á því að skráning er hafin á Mannamót 2019. Viðburðurinn hefur verið vel sóttur síðustu ár, en nú hefur verið ákveðið að gera breytingu á

Markaðsstofa Suðurlands vekur athygli á því að skráning er hafin á Mannamót 2019. Viðburðurinn hefur verið vel sóttur síðustu ár, en nú hefur verið ákveðið að gera breytingu á staðsetningu hans. Að þessu sinni verður Mannamót haldið Kórnum í Kópavogi, fimmtudaginn 17. janúar, 2019.

Tilgangur Mannamóts er að bjóða fram vettvang fyrir ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni til að kynna sig og sína starfsemi fyrir ferðaþjónustufyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu, og skapa með því aukin tengsl innan ferðaþjónustunnar í heild. Síðustu ár hafa sýnendur verið fleiri en 200 í hvert skipti og gestir yfir 700 talsins.

Markaðsstofur landshlutanna sjá um að senda út boðskort, bæði prentuð og rafræn auk þess sem viðburðurinn er vel auglýstur á Facebook. Við hvetjum samstarfsfyrirtæki okkar til að taka þátt í viðburðinum og deila viðburðinum á sínum samfélagsmiðlum.

Nánari upplýsingar um Mannamót má sjá með því að smella hér.

Sýnendur

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Þátttökugjald er 17.500 krónur, plús virðisaukaskattur. Skráningu lýkur þann 10. janúar 2019.

Hér er hægt að skrá sig sem sýnanda.

Gestir

Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Við biðjum þó þá sem ætla að koma sem gestir að skrá sig svo hægt sé að áætla fjöldann.

Sú skráning fer fram á hér.