Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Klár í Kína

Hagnýtt námskeið fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og ferðaþjóna

Klár í Kína er hagnýtt námskeið fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og ferðaþjóna þar sem fjallað verður um nálganir í sölu- og markaðsmálum í Kína, hvernig betur megi þjónustu kínverska ferðamenn, með því að skilja betur þeirra menningarheim og umhverfi og hvernig íslensk ferðaþjónustufyrirtæki geta betur undirbúið sig fyrir aukin viðskipti frá Kína.

Námskeiðið er haldið á Hótel Selfossi 12 Mars nk. kl. 14:30 - 17:30.

Námskeiðið er haldið af Ársæli Harðarsyni (Regional Manager Asia, Icelandair) og Arnari Steini Þorsteinssyni (Sölustjóri, Nonni Travel). Báðir hafa þeir starfað á Kínamarkaði í rúman áratug og hafa mikla haldbæra reynslu af bæði sölu- og markaðsmálum á hinum risavaxna og margslungna kínverska ferðamarkaði og þjónustu við kínverska ferðamenn.

Þetta er ómissandi námskeið bæði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki sem eru nú þegar að þjónusta kínverska ferðamenn og vilja bæta þá þjónustu og þau fyrirtæki sem hafa áhuga á að efla sitt sölu- og markaðsstarf í Kína með það fyrir augum að fá fleiri beinar bókanir og auka sína framlegð.

Boðið verður uppá léttar kaffiveitingar.
Verð: 7.900 kr.


Það er hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á arnarsteinnthorsteins@gmail.com


Ekki verður hægt að taka við greiðslum á staðnum og munu því verða sendir reikningsupplýsingar vegna greiðslu við móttöku skráningar.


Verið velkomin!