Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Herra Mosi - skemmtileg og fræðandi teiknimynd

Hr. MOSI er fyndin, skemmtileg og fræðandi teiknimynd, þar sem mosaálfurinn Hr. MOSI sýnir okkur hvernig við - mannfólkið – eigum að breyta hegðun okkar, þannig að við virðum og verndum mosann og annan gróður.

Herra MOSI býr í hraunbreiðum Skaftárhrepps

 

Hr. MOSI er fyndin, skemmtileg og fræðandi teiknimynd, þar sem mosaálfurinn Hr. MOSI sýnir okkur hvernig við - mannfólkið – eigum að breyta hegðun okkar, þannig að við virðum og verndum mosann og annan gróður.

Þessi stutta teiknimynd er ÁKALL til allra þeirra sem heimsækja eða búa á Íslandi, um að VIRÐA og sýna ÁBYRGÐ gagnvart ÍSLENSKRI náttúru.

Hugmyndin að verkefninu kviknaði í fjölþjóðlegu samstarfsverkefni sem kallast ASCENT og hefur það markmið að auka fagþekkingu og bæta vinnubrögð við göngustígagerð og uppbyggingu áningastaða með náttúruvernd að leiðarljósi. Á Íslandi leiðir Landgræðsla Ríkisins vinnuna en Skaftárhreppur tekur þátt með sérstaka áherslu á umgengni ferðamanna í Eldhrauni. Bob Aitken, skoskur sérfræðingur, kom hingað til lands og er myndbandið byggt á hugmynd frá honum sem varð til í hópvinnu ASCENT.

Hr. MOSI er borinn og barnfæddur á Kirkjubæjarklaustri í samstarfi VISITKLAUSTUR.IS sem er framleiðandi myndarinnar, Kötlu Jarðvangs auk styrkveitingar frá Umhverfis og auðlindaráðuneytinu. Myndina gerði This is LUPINA – grafískt hönnunarstúdíó á Kirkjubæjarklaustri.

Stuttmyndin (1,41mín) var frumsýnd á viðburði Kötlu jarðvangsvikunnar á Kirkjubæjarklaustri þann 30.apríl 2019

 

Nánari upplýsingar: framtid@klaustur.is

www.visitklaustur.is