Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fjaðrárgljúfur og Skógaheiði opna aftur 1. júní

Umhverfisstofnun mun frá og með morgundeginum, 1. júní, opna gönguleiðir á náttúruverndarsvæðunum Fjaðrárgljúfri og Skógaheiði ofan Skógafoss.
Fjaðrárgljúfur og Skógaheiði opna aftur. Mynd: Umhverfisstofnun
Fjaðrárgljúfur og Skógaheiði opna aftur. Mynd: Umhverfisstofnun

Umhverfisstofnun mun frá og með morgundeginum, 1. júní,  opna gönguleiðir á náttúruverndarsvæðunum Fjaðrárgljúfri og Skógaheiði ofan Skógafoss. Stofnunin vill beina því til gesta að mjög mikilvægt er að einungis sé gengið eftir merktum gönguleiðum og að aldrei sé farið yfir girðingar eða inn á svæði þar sem umferð er takmörkuð vegna viðkvæms gróðurs eða dýralífs.

Margir virtu lokanir að vettugi

Lokanir hafa skilað góðum árangri og hefur tekist að draga úr hnignun þessara svæða. Gróður hefur tekið vel við sér meðfram göngustígum og eru stígar orðnir þurrir þar sem frost er farið úr jörðu og vatn á greiðari leið ofan í jarðveginn. Svæðin eru þó bæði illa farin vegna mikillar umferðar þar sem innviðir eru takmarkaðir til að vernda þau gegn átroðningi. Það hefur oft reynst þrautinni þyngri að halda svæðunum lokuðum og allt of margir gestir hafa virt lokanirnar að vettugi. Til þess að lokanir virka sem skyldi, þarf landvörður ávallt að vera til staðar til að fræða gesti um ástæður lokananna og auka þannig skilning fólks og virðingu fyrir náttúrunni.

Uppgræðsla á rofaborðum

Fjármagni var úthlutað úr landsáætlun um uppbyggingu innviða í bráðaaðgerðir við Fjaðrárgljúfur og er verið að vinna í að lagfæra neðri hluta göngustígarins frá bílastæðinu og setja upp leiðbeinandi skilti og girðingar meðfram stígnum. Hluti fjármagnsins var settur í hönnunarvinnu á göngustíg og hefst vinna við uppbyggingu hluta gönguleiðarinnar á næstu dögum. Gera má ráð fyrir að umferð verði takmörkuð um hluta svæðisins meðan á þeirri vinnu stendur.

Á Skógaheiði er nú þegar búið að gera áætlun um lagfæringu á göngustíg og verður lokið við fyrsta áfanga þeirrar vinnu í sumar. Einnig er unnið að uppgræðslu á rofabörðum í samstarfi við Landgræðsluna, en gróðurþekjan er víða rofin og verulega illa farin. Þá er vinna við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar á lokametrunum.

Landvarsla skiptir sköpum

Fjaðrárgljúfur og náttúruvættið Skógafoss hafa mikið aðdráttarafl þar sem hundruð þúsunda gesta heimsækja svæðin allt árið um kring. Landvarsla getur skipt sköpun í verndun svæðanna og er gríðarlega mikilvægt að hún sé til staðar allt árið um kring. Með aukinni landvörslu má bæta ferðahegðun gesta til muna sem dregur úr ágangi á viðkvæma náttúru og kemur mögulega í veg fyrir árlegar lokanir margra svæða.