Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ferðamaður Framtíðarinnar

Markaðsstofur landshlutanna í samstarfi við Ferðamálastofu bjóða til ráðstefnu um strauma og stefnur í ferðamálum framtíðarinnar.

Markaðsstofur landshlutanna í samstarfi við Ferðamálastofu bjóða til ráðstefnu um strauma og stefnur í ferðamálum framtíðarinnar.

Ráðstefnan er haldin á Hótel Reykjavík Natura 12. september 2019 frá 13:00 til 16:00.

Paul Davies, forstöðumaður ferðamálarannsókna hjá markaðsráðgjafafyrirtækinu MINTEL verður gestur og aðalfyrirlesari ráðstefnunnar. MINTEL er leiðandi í ferðaþjónustu- og markaðsrannsóknum í heiminum í dag. Paul Davies er forstöðumaður rannsóknateymis fyrir ferðaþjónustu, frístundir og veitingaþjónustu. Hann hefur mikla reynslu á sviði markaðsrannsókna og víðtæka þekkingu á neytenda- og kauphegðun. Í fyrirlestri sínum mun Paul fara yfir helstu strauma og stefnur í kaup- og ferðahegðun fólks á heimsvísu, auk þess að fjalla um hvernig sú þróun hefur áhrif á ferðaþjónustu í heiminum. 

Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna með því að smella á "Skráning" hér fyrir neðan.

SKRÁNING