Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Opnað hefur fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2021. Opnað verður fyrir umsóknir 8. september og er umsóknarfrestur til kl. 12 á hádegi 6. október. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Brúarhlöð

Sjóðurinn styrkir verkefni sem snúa að

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd og uppbyggingu.
  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Sjóðurinn styrkir ekki

  • Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
  • Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

Allar upplýsingar um Framkvæmdarsjóðinn má finna hér 

Mikilvægt er að vanda vel til verka við umsókn og kynna sér vel lög og reglur sem gilda um sjóðinn. Gæðaviðmið sjóðsins og upplýsingar um frekari skilyrði lánveitinga og umsóknarferlið má finna hér: Upplýsingasíða um umsóknir.

Hvar á að skila inn umsókn?

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Þjónustugátt Ferðamálastofu.

Úthlutanir 2020

Í þeim tveimur úthlutunum sem voru á vormánuðum 2020 voru 18 verkefni á Suðurlandi styrkt samtals að upphæð kr 159.450.536.- Þar af voru 9 verkefni á vegum sveitarfélaga og 9 verkefni á vegum landeiganda og félaga.

Úthlutanir 2020

 Staðsetningar á úthlutunum má sjá hér: Vefsjá Framkvæmdarsjóðs