Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Markaðsstofur landshlutanna buðu til ráðstefnu um strauma og stefnur í ferðamálum framtíðarinnar

Markaðsstofur landshlutanna buðu til ráðstefnu um strauma og stefnur í ferðamálum framtíðarinnar. Ráðstefnan var haldin á Hótel Reykjavík Natura 12. september 2019
Ferðamaður framtíðarinnar -Haustráðstefna MAS 2019
Ferðamaður framtíðarinnar -Haustráðstefna MAS 2019

Markaðsstofur landshlutanna buðu til ráðstefnu um strauma og stefnur í ferðamálum framtíðarinnar.
Ráðstefnan var haldin á Hótel Reykjavík Natura 12. september 2019 frá 13:00 til 16:00.

Paul Davies, forstöðumaður ferðamálarannsókna hjá markaðsráðgjafafyrirtækinu MINTEL var gestur og aðalfyrirlesari ráðstefnunnar. MINTEL er leiðandi í ferðaþjónustu- og markaðsrannsóknum í heiminum í dag. Paul Davies er forstöðumaður rannsóknateymis fyrir ferðaþjónustu, frístundir og veitingaþjónustu. Hann hefur mikla reynslu á sviði markaðsrannsókna og víðtæka þekkingu á neytenda- og kauphegðun. Í fyrirlestri sínum mun Paul fara yfir helstu strauma og stefnur í kaup- og ferðahegðun fólks á heimsvísu, auk þess að fjalla um hvernig sú þróun hefur áhrif á ferðaþjónustu í heiminum. 

Dagskrá:

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála opnar ráðstefnuna
  • Paul Davies, forstöðumaður ferðamálarannsóknar hjá Mintel, „Trends in Tourism"
  • Inga Rós Antoníusdóttir, verkefnastjóri Ferðamálastofu Íslands, „Stafræn tækifæri í íslenskri ferðaþjónustu"
  • Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður, Áfangastaðurinn hjá Íslandsstofu, „Áfangastaðurinn Ísland – Straumar og stefnur"
  • Grétar Ingi Erlendsson, Nordic Green Travel, Eitt skref í einu"
  • Ragnhildur Sigurðardóttir, svæðisgarðurinn Snæfellsnesi, „Fólk vill fólk - Upplýsingagjöf til ferðamanna"
  • Ráðstefnustjóri: Díana Jóhannsdóttir, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða

Upptöku frá ráðstefnunni má nálgast hér


Ferðamaður framtíðarinnar - Haustráðstefna MAS 2019