Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Upplýsingamiðstöðvar ferðamála má finna víðsvegar um landið. Starfsfólk þeirra veitir meðal annars upplýsingar um veður, áhugaverða staði, aðstoðar við bókanir og margt fleira. Þar er einnig hægt að nálgast kort og bæklinga.

Upplýsingamiðstöð Suðurlands (Landshlutamiðstöð)
Upplýsingamiðstöð Suðurlands er staðsett í Hveragerði eða 38 km frá Reykjavík. Þar getur þú nálgast upplýsingar fyrir ferðalag þitt á Suðurlandi.Bæklingar, ferðakort og internet. Þar er einnig  hægt að upplifa jarðskjálfta sem er 6.6 á ricter og sjá sprungu sem er í gólfinu og upplýst sem talin er vera 4000 – 5000 ára gömul. Opnunartímar 1.júní – 31.ágúst   Mánudag – fimmtudaga 8:30-16:30 Föstudaga 8:30-16:00 Laugardag 9:00-13:00  Umhverfisstefna Hveragerðisbæjar  www.facebook.com/upplysingamidstod.Sudurlands
South Center
Verið velkomin í South Center - í hjarta miðbæjar Selfoss! Við erum upplýsingarmiðstöð fyrir ferðamenn. Hvort sem þú ert að leita að rjúkandi kaffibolla, ert með brennandi spurningar um svæðið eða ert að spá í að bóka ógleymanlega ferð um Suðurland, þá erum við hér til að leiðbeina þér.
Skaftárstofa – Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri
Skaftárstofa er glæsileg ný gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs við þjóðveg eitt, við Sönghól, í nágrenni Kirkjubæjarklausturs. Þar er jafnframt upplýsingamiðstöð fyrir Skaftárhrepp. Á meðan unnið er að nýrri fræðslusýningu um þjóðgarðinn í rýmið býðst gestum að skoða sýningu Jöklarannsóknafélags Íslands, Vorferð. Sýningin var gerð í tilefni af 70 ára afmæli félagsins og varpar meðal annars ljósi á sögu félagsins, segir frá skálabyggingum, vorferðum á jökli, sporðamælingum, rannsóknarverkefnum, jöklabakteríunni og tímaritinu Jökli. Stuttmyndir:Eldgosið í Grímsvötnum 2011Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs Opnunartímar gestastofu Þátttakandi í VAKINN - gæða og umhverfiskerfi íslenskrar ferðaþjónustu.
LAVA centre
LAVA – Eldfjalla og jarðskjálftamiðstöð Íslands er allsherjar afþreyingar- og upplifunarmiðstöð sem helguð er þeim gríðarlegu náttúruöflum sem hófu að skapa Ísland fyrir nærri 20 milljón árum síðan og eru enn að. LAVA centre gefur þér ekki aðeins kost á að upplifa þessi náttúruöfl með gagnvirkum og lifandi hætti heldur tengir þig einnig við náttúruna sem við þér blasir; Heklu, Tindfjöll, Kötlu, Eyjafjallajökul og Vestmannaeyjar. LAVA er “glugginn” inn í  jarðvanginn, Katla Geopark, ásamt því að vera alhliða upplýsinga, sölu- og þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn. LAVA kemur einnig á framfæri, með beinum hætti, upplýsingum um jarðhræringar, eldgos og aðrar náttúruhamfarir í samvinnu við Almannavarnir, Veðurstofu Íslands og lögreglu. LAVA er kjörinn viðkomustaður fyrir alla sem hafa áhuga á að læra meira um jarðfræði Íslands, sjá og finna fyrir kraftinum sem liggur undir landinu. Lifandi og skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna! Aðgangsverð fyrir sýningu, 12 mínútna kvikmynd og útsýnispall er 3590 kr og fjölskyldu pakki er á 8975 kr (fullorðnir + 1 barn 6-15 ára greiða, aðrir 15 ára og yngri fá frítt). Allar upplýsingar um verð má finna á heimasíðunni www.lavacentre.is og þar er einnig hægt að kaupa miða fyrirfram. Einnig er auðvelt og fljótlegt að kaupa miða við innganginn. 
Skaftafellsstofa – gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli
Skaftafellsstofa er upplýsinga- og fræðslumiðstöð þar sem gestir fá svör við spurningum um náttúrufar Skaftafells, gönguleiðir, gistingu og afþreyingu í næsta nágrenni. Upplýsingar um opnunartíma má finna hér: https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/is/svaedin/skaftafell/skipuleggja-heimsokn/skaftafellsstofa Gönguleiðir á svæðinu eru margar og fjölbreyttar. Hér má nálgast yfirlit gönguleiða í Skaftafelli. Yfir sumarið bjóða landverðir uppá fræðslugöngur og barnastundir.  Í Skaftafellsstofu eru upplýsingar um jarðfræði og náttúru í Skaftafelli. Sýnd er mynd um suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs á opnunartíma Skaftafellsstofu. Í Skaftafellsstofu má einnig sjá muni úr örlagaríkum leiðangri breskra háskólastúdenta árið 1952. Í Skaftafellstofu er minjagripaverslun með bækur, póstkort og handverk. Lögð er áhersla á íslenskar vörur og muni sem tengjast byggðarlaginu. Þar er einnig hægt að kaupa fræðslumynd um flóð Skeiðarárjökuls árið 1996. Veitingasala og sölubásar ferðaþjónustuaðila er á svæðinu ásamt stoppistöð áætlunarbíla.  Á tjaldsvæðinu í Skaftafelli er WC, (líka fyrir hreyfihamlaða), rennandi vatn (heitt og kalt), sturtuaðstaða, aðstaða fyrir losun húsbílasalerna, útigrill, þvottavél, þurrkari og nettenging. Þjónustumiðstöð í nágrenninu og margskonar tækifæri.  Tjaldsvæðið er opið allt árið um kring. Þátttakandi í VAKINN - gæða og umhverfiskerfi íslenskrar ferðaþjónustu.
Sagnheimar, byggða- og náttúrugripasafn
Sagnheimar - byggðasafnSagnheimar eru nýtt safn sem byggir á gömlum merg byggðasafnsins. Margmiðlun er nýtt í viðbót við safnmuni til að segja  einstaka sögu Vestmannaeyja, má þar nefna: Heimaeyjargosið 1973 Aðfararnótt 23. janúar hófst eldgos í Heimaey. Þá um nóttina voru nær allir íbúarnir, um 5.300 manns, fluttir til lands. Af um 1345 húsum fór um þriðjungur undir ösku og annar þriðjungur skemmdist.  Á sýningunni getur að líta fjölda ljósmynda auk þess sem unnt er að hlusta á viðtöl. Tyrkjaránið 1627 16. júlí 1627 læddust þrjú skip upp að austurströnd Heimaeyjar og á land stigu 300 sjóræningjar. Í þrjá daga æddu þeir um eyjuna með hrópum og köllum, hertóku fólk og drápu miskunnarlaust. Af um 500 íbúum höfðu sjóræningjarnir með sér 242 fanga til skips og seldu á þrælamarkaði í Alsír. Saga Tyrkjaránsins er sögð í formi teiknimynda. Hættulegasta starf í heimi? Sjómennskan og fiskvinnsla skipa mikilvægasta sessinn í lífi Eyjamanna. Fjallað er um þróun fiskveiða, sjómannslífið, hættur og hetjudáðir, björgunarstörf, vinnslu í landi og verbúðarlíf í máli og myndum í viðbót við gamla muni. Í gamalli talstöð má heyra bæjarbúa segja sögu sjóslysa. Opnunartími 1. maí - 30. september: alla daga frá 10:00-17:00 1. október - 30. apríl: Laugardaga 12:00-15:00, aðra daga lokað (opið eftir samkomulagi)  
Katla Jarðvangur / Katla Geopark
Katla Jarðvangur Í Kötlu jarðvangi eru margar merkilegar jarðminjar, sumar á heimsvísu.  Yfir 150 eldgos hafa verið skráð þar frá landnámi. Eldvirknin hefur mótað landið og haft áhrif á búsetu manna eins og öskugosin í Eyjafjallajökli 2010 og Grímsvötnum 2011 sanna. Einstaklega kvik og síbreytileg náttúra hefur mótað sögu og mannlíf jarðvangsins í aldanna rás.   Katla jarðvangur nær yfir land þriggja sveitarfélaga, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Flatarmál hans er 9542 km2 eða rúm 9 % af heildarflatarmáli Íslands. Íbúafjöldi er um 2700 manns. Kvikfjárrækt hefur verið megin atvinnuvegur svæðisins en síðustu ár hefur kornrækt aukist. Hvolsvöllur, Vík og Kirkjubæjarklaustur eru helstu þjónustukjarnar fyrir sveitirnar. Undanfarin ár hefur mikilvægi ferðaþjónustu aukist gríðarlega í atvinnulífi svæðisins.   Jarðfræði Ísland er á Mið-Atlantshafshryggnum þar sem tveir jarðskorpuflekar gliðna í sundur á svokölluðu rekbelti. Auk þess er möttulstrókur undir landinu með miðju undir Vatnajökli. Samspil rekbeltis og möttulstróks veldur flókinni og fjölbreyttri eldvirkni á Suðurlandi. Sérstaða Kötlu jarðvangsins felst í þessari eldvirkni og víðfeðmum áhrifum hennar á landmótun og náttúrufar. Einkennandi eru megineldstöðvar, gígar og gossprungur, gervigígar, hraunbreiður, móbergsfjöll og móbergshryggir sem hafa sömu stefnu og rekbeltið. Eldstöðvakerfin Hekla, Katla, Grímsvötn og Bárðarbunga eru virkust við landmótunina. Jöklar eru einnig áberandi í landslagi þar sem þeir þekja hæstu eldfjöll. Frá þeim falla skriðjöklar og jökulár. Jökulgarðar og jökullón eru einnig áberandi. Hamfaraflóð vegna eldgosa undir jökli mynduðu sandana á láglendi. Elsta bergið er um 2,5 milljón ára gamalt og finnst við rætur Lómagnúps sem er gamall sjávarhamar og eitt hæsta standberg landsins (671 m). Aðrar áhugaverðar myndanir í jarðvanginum eru steingervingar í hnyðlingum og gjóskulög sem hafa reynst vel við aldursákvarðanir. 
Upplýsingamiðstöðin á Selfossi (Svæðismiðstöð)
Upplýsingamiðstöðin á Selfossi er til húsa í ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2. Upplýsingamiðstöðin þjónustar íbúa og ferðamenn allt árið um kring. Ókeypis kort með þjónustulista og landakort frá öðrum landshlutum. Frír internetaðgangur og alltaf heitt á könnunni. OpnunartímarVirka daga | 09:00 - 18:00Laugardaga | 10:00 - 14:00Sunnudaga | Lokað
Midgard Adventure
Midgard Adventure Midgard Adventure er ferðaþjónustufyrirtæki á Hvolsvelli sem var stofnað árið 2010. Við sérhæfum okkur í ævintýraferðum um Suðurlandið, bæði dagsferðum og lengri ferðum. Við rekum einnig Midgard Base Camp sem er í senn gistiaðstaða, veitingastaður og bar. DagsferðirVið bjóðum upp á ýmis konar dagsferðir: hálendisferðir, jeppaferðir, gönguferðir, hjólaferðir, útsýnisferðir og jöklaferðir. Vinsælustu dagsferðirnar okkar yfir sumartímann er Þórsmörk Super Jeep, Þórsmörk Hike og Landamannalaugar Day Tour. Vinsælustu dagsferðirnar okkar yfir vetrartímann eru Þórsmörk Super Jeep, Meet Eyjafjallajökull og Midgard Surprise. Lengri ferðirVið bjóðum einnig upp á lengri ferðir frá tveimur upp í átta daga. Vinsælasta ferðin okkar yfir sumatímann er 4-Day Iceland Adventure Package og yfir vetrartímann er það 4-Day Northern Lights Adventure. Sérferðir og ferðaplönVið tökum einnig að okkur að sérferðir (prívat) og skipuleggjum ferðalög gesta frá A til Ö. Þá bókum við allar ferðir, gistingu og samgöngur. FyrirtækjapakkarVið erum með í boði ýmsa spennandi fyrirtækjapakka. Sjá nánar hér. SkólahóparVið bjóðum einnig upp á ferðir fyrir skólahópa. Sjá nánar hér. Vantar þig gistingu?Midgard Base Camp er í senn hótel og hostel. Allir gestir fá aðgang að heitum potti og sauna. Á Midgard Base Camp er einnig að finna veitingastað og bar.  Áhugaverðir tenglar Heimasíða Midgard Adventure Heimasíða Midgard Base Camp Heimasíða Midgard Restaurant Kynningarmyndbönd Midgard Midgard Adventure á Facebook Midgard Base Camp á Facebook @MidgardAdventure á Instagram @Midgard.Base.Camp á Instagram  
Þingvellir
Á tjaldsvæði má finna, salerni, sturtur, þvottaaðstöðu, útivaska og kolagrill. Í þjónustumiðstöðinni er kaffi- og veitingaaðstaða. Þar er einnig seld tjald- og veiðileyfi. Sumaropnunartími (júní-ágúst):09:00 - 20:00Vetraropnunartími (september - maí):Upplýsingahlið gestastofu: 09:00-16:00Verslun og þjónustumiðstöð á Leirum: 09:00-18:00

Aðrir (5)

Almenningssamgöngur - upplýsingasíða - 101 Reykjavík 864-2776
Eldfjallaferðir Víkurbraut 2 240 Grindavík 426-8822
Verslunin Árborg - Grill Árbær 801 Selfoss 864-3890
Upplýsingamiðstöð Ölfuss Hafnarberg 41 815 Þorlákshöfn 480-3890
Sveitabúðin UNA Austurvegur 4 860 Hvolsvöllur 544-5455