Flýtilyklar
Hótel Örk
Hótel Örk er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel staðsett í Hveragerði, um 45 km frá Reykjavík. Á hótelinu má finna björt og vel innréttuð herbergi, allt frá standard upp í glæsilegar svítur sem tryggja ánægjulega og eftirminnilega dvöl í fallegu umhverfi.
Gestir hafa aðgang að útisundlaug, veitingastað, heitum pottum, gufubaði, golfvelli og afþreyingarherbergi. Hótelið býður einnig upp á fyrirtaksaðstöðu fyrir árangursríka fundi, veislur og aðra mannfagnaði.
HVER Restaurant er vinsæll veitingastaður í sama húsi og hótel Örk þar sem lögð áhersla er á góða og persónulega þjónustu. HVER er með fjölbreyttan a la carte matseðil sem og matseðil fyrir hópa og hentar því vel fyrir alla. Á HVER Bar gefst fólki færi á að slappa af eftir amstur dagsins og njóta góðra drykkja.
Opið er allt árið. Verið velkomin!
Breiðamörk 1
483-4775
Hótel Örk - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands
Hótel
Hótel Eldhestar
Verslun
Ölverk Pizza & Brugghús
Sundlaugar
Sundhöllin Selfossi
Sundlaugar
Sundlaugin Þorlákshöfn
Upplýsingamiðstöðvar
Upplýsingamiðstöð Suðurlands (Landshlutamiðstöð)
Gönguferðir
Iceland Activities
Dagsferðir
Black Beach Tours
Ferðaskrifstofur
Eldhestar
Hestaafþreying
Sólhestar ehf.
Sundlaugar
Sundlaugin Hveragerði
Aðrir
- Laugaskarð
- 810 Hveragerði
- 483-4113
- Kálfhólar 21
- 800 Selfoss
- 857-2000
- Strokkhólsvegur 7
- 801 Selfoss
- 699-5777
- Tryggvagata 13
- 800 Selfoss
- 898-6463
- Lambastaðir
- 801 Selfoss
- 777-0705
- Fossnes C
- 800 Selfoss
- 4801200, 568-1410
- Hafnarsandi
- 815 Þorlákshöfn
- 483-3009, 844-5756
- Sunnuvegur 5
- 800 Selfoss
- 7768707, 7700034
- Ástjörn 7
- 800 Selfoss
- 697-9280
- Bjarnastaðir
- 816 Ölfus
- 844-6967
- Egilsbraut 4
- 815 Þorlákshöfn
- 690-1111
- Stekkjarvað 5
- 820 Eyrarbakki
- 823-2205
- Móland 3
- 800 Selfoss
- 699 5777
- Norðurbraut 33
- 801 Selfoss
- 822-3345
- Selfossi
- 800 Selfoss
- 482-3335
- Faxabraut
- 815 Þorlákshöfn
- 650-6200
- Gjáhella 3
- 221 Hafnarfjörður
- 892-0888
- Stóri-Háls
- 801 Selfoss
- 898-1599, 697-9461
- Stekkholt 1
- 801 Selfoss
- 856-5255
- Breiðamörk
- 810 Hveragerði
- 483-4000
- Gufudalur
- 810 Hveragerði
- 483-5090, 483-5091
Náttúra
Hellisskógur
Hellisskógur er skógræktarsvæði rétt utan við Selfoss. Lagðir hafa verið akvegir og göngustígar um svæðið, settir bekkir og borð og Hellirinn grafinn út og útbúinn sem áningarstaður þar sem fólk getur
sest niður og fundið sér skjól fyrir veðri og vindum. Hellisskógur hefur smám saman orðið eitt helsta útivistarsvæði Selfyssinga.
Stóri-Hellir í Hellisskógi myndaðist við lok jökulskeiðs á ísöld þegar brim svarf klettinn. Ummerki um
hærra sjávarborð og sjávarrof sést á fjölmörgum stöðum í hellinum sem myndaðist í 0,7-3,1 milljón ára gömlu basalti. Innst í hellinum var áður geymt hey en fjárhús var staðsett við hellismunnann að framanverðu. Telja sumir að reimt sé í hellinum, af draug með bláan trefil.
Náttúra
Kerið
Gamall sprengigígur í Grímsnesi, um 3000 ára gamall, nyrst í hólaþyrpingu sem nefnist Tjarnarhólar. Kerið er sporbaugslaga, um 270 m langt og breiðast 170 m. Dýpt gígsins er 55 m en í botni hans er tjörn sem er breytileg að dýpt, 7-14 m. Það er gömul sögn að þegar vatnsborð hækkar í Kerinu lækki að sama skapi í tjörninni uppi á Búrfelli í Grímsnesi og öfugt. Sumarið 1987 voru haldnir útitónleikar í Kerinu. Voru listamennirnir úti á tjörninni í gúmmíbátum.
Náttúra
Flóaáveitan
Flóaáveitan eru skurðir sem liggja um gjörvallan Flóa eða allt frá Ölfusá í vestri að Þjórsá í austri. Þetta stórvirki síns tíma samanstóð af 300 km löngum skurðum sem að mestu voru handgrafnir- og 900 km af flóðvarnargörðum. Flóaáveitan mun hafa náð yfir 12 þúsund hektara land og með tilkomu hennar urðu mikil umskipti í búskap og atvinnuháttum á svæðinu. Framkvæmdir við áveituna hófust 1922 og var flóðgáttin tekin í notkunn árið 1927 þegar Flóaáveitan tók til starfa. Enn þann dag í dag gegnir hún viðamiklu hlutverki í vatnsmiðlun í sveitafélaginu. Inntak áveitunnar er við Hvítá, þar er upplýsingaskilti með ítarlegum upplýsingum um Flóaáveituna. Til austurs frá inntakinu er merkt gönguleið (um 4,4 km ganga, aðra leið).
Náttúra
Ströndin Ölfusi - Skötubót
Fjaran austan við byggðina í Þorlákshöfn er í daglegu tali nefnd Skötubót. Skötubótin er skemmtilegur staður fyrir útivist, ungir sem aldnir njóta þess að ganga og leika sér í þessari fallegu svörtu sandfjöru sem nær frá Þorlákshöfn að ósum Ölfusár. Margir knapar njóta þess að ríða í flæðarmálinu og einnig má sjá brimbrettakappa spreyta sig á öldunum. Skötubótin hentar vel fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á brimbrettum en þeir sem eru lengra komnir fara á brimbretti við Hafnarnesvita þar sem öldurnar eru meira krefjandi.
Saga og menning
Selfosskirkja
Selfosskirkja var byggð á árunum 1952 - 1956 og vígð það sama ár. Hún var teiknuð af Bjarna Pálssyni skólastjóar Iðnskólans á Selfossi. Árið 1978-1984 var bætt við kirkjuna forkirkju, turn og safnaðarheilmili með eldhúsi ásamt aðstöðu fyrir félagsstarf. Kirkja var máluð og skreytt af Jóni og Grétu Björnsdóttir listakonu sem sá um flúrið en í því er leitast við að fylgja kirkjuárinu. Gluggar kirkjunar voru unnir af glerlistafólki frá Þýskalandi og kom í kórinn árið 1987 en í kirkjuskipið árið 1993. Þó Selfosskirkja sé ung að árum er hún með sérstöðu meðal kirkna landsins á 20 öld.
Sr. Sigurður Pálsson var fysti sóknarpresturinn í Selfosskirkju en áður var hann í Hraungerði í Flóa en flutist á Selfoss 1950 þegar fólksfjölgun varð hér. Lagði hann mikla áherslu á helgihald, endurreisn hins forna og sígilda messusöngva ásamt messuformi sem er þekkt sem helgisiðabókin Graduale (þrepasöngur) og var gefin út árið 1594. Grallari kallast þessi bók og inniheldur tónlög og texta að messusöng og tíðagjörð kirkjunnar. Hefur verið enn þá daginn í dag haldið í þessum anda, Grallarans íslenska og mörgum kunn að finnast að hönnun kirkjunnar minna einnig á þennann anda. Sr. Sigurður Sigurðarson tók við embætti föður sins árið 1971 en lét af störfum árið 1994 og hélt þá í vígslubiskupsembætti í Skálholti.
Náttúra
Hengill og Jarðhitasýning á Hellisheiði
Eldfjallið Hengill er virkt en hefur verið í dvala í yfir 2000 ár. Tvær virkjanir eru við Hengil, Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun, sem nýta jarðvarmann frá eldfjallinu. Á Hengilssvæðinu eru um 125 km af merktum gönguleiðum sem eru litamerktar eftir erfiðleikastigum. Fjölbreytt landslag og litadýrð einkenna gönguleiðirnar.
Jarðhitasýning ON í Hellisheiðarvirkjun veitir innsýn í virkjun og nýtingu jarðvarma á Íslandi. Á sýningunni er jarðfræði, tækni og saga sett fram á aðgengilegan og skýran hátt með myndum og margmiðlunartækni.
Náttúra
Timburhóll - Skógrækt
Skógræktarreitur Ungmennafélagsins Samhygðar. Grillaðstaða og gróskumikill skógur. Hér er minnisvarði um hjónin í Vorsabæ, Guðfinnu Guðmundsdóttur og Stefán Jasonarson. Þau hjónin voru bændur í Vorsabæ í hálfa öld og Stefán var frumherji í störfum fyrir samtök sunnlenskra bænda, ungmennafélagshreyfinguna, umferðaröryggi og varðveislu þjóðlegra verðmæta. Auk þess er hér minnismerki um Ásgrím Jónsson listmálara. Gestir eru beðnir um að ganga vel um.
Saga og menning
Ölfusárbrú
Ölfusárbrú er byggð yfir vatnsmesta fljót landsins sem spanner 384 rúmmetra á sekúndu að meðaltali á árs grundvelli. Á suðurenda brúarinnar við Tryggvaskála er upplýsingaskilti sem sýnir flóðahæð í þremur mestu flóðum í Ölfusá á 20. Öld.
Árið 1872 var fyrst talað um að brúa yfir Ölfusá af Hannesi Stehensen presti. Fyrst var farið í að ferja fólk yfir ána. Árið 1891 hófst brúarsmíðin sjálf. Gekk það í fyrstu með áföllum þar sem þeir mistu einn mann í ána. Síðar kom í ljós að stöplarnir undir brúni voru ekki nógu hair svo að klakabelti komast undir hana. Vígsla brúarinnar var 1891 og voru settar ýmsar reglur hvað varðar notkunn brúarinnar en það varðar reiðmennsku yfir brúnna.
Árið 1944 slitnaði brúarstrengur vegan þyngdar mjólkurbíls með annan bíl í togi svo að þeir féllu báðir í ánna. Var þá ný brú byggð árið 1945 og þjónar enn þá daginn í dag sínum tilgangi og er hún 84 metrar að lengd á milli stöpla.
Náttúra
Hveragarðurinn í Hveragerði
Hverasvæðið í Hveragerði er staðsett inni í miðjum kaupstaðnum og er eitt af merkilegri náttúruperlum Suðurlands. Hveragerði er í austurjaðri gosbeltis sem liggur frá Reykjanesi um Þingvelli og norður Langjökul og liggur hverasvæðið þvert á þetta gosbelti.
Á staðnum er móttaka fyrir ferðamenn í skála sem er við Hveramörk, austast á hverasvæðinu. Þar er hægt að
afla sér margvíslegra upplýsinga um tilvist jarðhitans, tengsl við örverufræði, jarðfræði, sprungur og eldvirkni. Auk þess er þar útskýrt hvernig nýting jarðhitans fer fram, greint frá dýpi borhola, afli sem úr þeim fæst og hvernig það er nýtt.
Í Hveragarðinum er hægt að ganga um svæðið og skoða gömlu hverina og gufuholur og kynna sér sögu og jarðfræði þessa einstaka svæðis.
Í Hveragarðinum er hægt að sjóða egg og smakka á hverabökuðu rúgbrauði þar sem gufan á svæðinu er nýtt í baksturinn og eggjasuðuna. Einnig er hægt að prufa leir-fótaböðin sem hafa heilsubætandi áhrif. Goshverinn Eilífur gýs reglulega og ekki má gleyma að kíkja á gróðurhúsið.
Símanúmer: 483-5062
https://www.facebook.com/Geothermalpark/
Náttúra
Ingólfsfjall
Ingólfsfjall í Ölfusi er 551m. Ingólfsfjall er hömrum girt á þrjá vegu og mjög hlíðabratt. Þegar sjávarstaða var hæst í ísaldarlok hefur það verið sæbrattur höfði sem brimið braut niður og skapaði þá hinar bröttu hlíðar. Það er tengt Grafningsfjöllum með Grafningshálsi. Ingólfsfjall er einkum gert úr móbergi með hraunlögum inn á milli einkum að neðan og í kolli. Ingólfsfjall hefur orðið til um miðja ísöld. Suður úr vesturhorni fjallsins skagar grár klettamúli Silfurberg sem er úr móbergi með ljósum holufyllingum sem aðallega eru geislasteinaútfellingar. Þar suður af er Kögunarhóll og liggur þjóðvegurinn á milli. Ingólfsfjall er kennt við landnámsmanninn Ingólf Arnarson. Uppi á fjallinu er grágrýtishæð sem heitir Inghóll og segja munnmæli að þar sé Ingólfur heygður. Undir Ingólfsfjalli sunnanverðu er Fjallstún.
Í Landnámabók segir að þar hafi Ingólfur Arnarson haft vetursetu hinn þriðja vetur sinn hér á landi á leið sinni til Reykjavíkur. Síðar reis þar stórbýli sem hét Fjall og fór í eyði á 18. öld. Enn sjást leifar fornra mannvirkja á staðnum og eru nú friðlýstar.
Hinn 29. mai 2008 voru upptök Suðurlandsskjálfa að stærðinni 6,3 á richter kvarða undir Ingólfsfjalli.
Saga og menning
Laugardælir
Laugardælir er lítil byggð rétt utan við Selfoss. Laugardælir var einn fjölfarnasti lögferjustaður landsins þar til brúin var byggð yfir Ölfusá hjá Selfossi 1891. Árið 1957 var ný kirkja vígð á Selfossi og Laugardælasókn lögð til hennar, utan nokkurra bæja sem færðust til Hraungerðissóknar. Staðurinn var kirkjulaus í nokkur ár eða til ársins 1965 þegar nýja kirkjan var byggð. Kirkjan er úr steinsteypu, 300 m² með pípuorgeli og tekur 70 manns í sæti. Bjarni Pálsson, byggingarfulltrúi á Selfossi, teiknaði hana og Sigfús Kristinsson, byggingarmeistari á Selfossi, var kirkjusmiður. Í garði Laugardælakirkju er legstaður Bobbby Fischer (1943-2008), hins litríka og umdeilda heimsmeistara í skák.
Saga og menning
Hraungerðiskirkja
Hraungerði er kirkjustaður, höfuðból og fyrrum þingstaður. Landnámsjörð Hróðgerðs hins spaka, ættföður Oddverja. Fyrst er getið kirkju í Hraungerði í skrá Páls biskups frá því um árið 1200 og hafa fjölmargar kirkjur verið á staðnum síðan þá. Núverandi Hraungerðiskirkja var vígð 4. sunnudag í aðventu, þann 21. desember 1902, af sr. Valdimar Briem prófasti. Eiríkur Gíslason, smiður frá Bitru í Hraungerðishreppi, var ráðinn til að teikna kirkjuna, gera byggingaráætlun og að lokum smíða hana. Kirkjunni hefur vel verið haldið við á undanförnum árum. Kirkjan var friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.
Náttúra
Hafnarnesviti og útsýnisskífa
Hafnarnes er útivistarsvæði sunnan við byggðina í Þorlákshöfn þar sem stórbrotnir klettar og öldurnar heilla alla sem þangað fara. Útsýnisskífa er á svæðinu og útsýnið er einstakt þaðan. Hægt er að fylgjast með brimbrettaköppum spreyta sig á öldunum með Eyjafjallajökul í baksýn. Hafnarnesviti stendur við endann á Hafnarnesinu, hann er ekki opinn almenningi en fallegt er að mynda hann þegar öldurnar umlykja hann.
Náttúra
Arnarbæli
Arnarbælishverfi í Ölfusi var frá 13. öld til byrjunar 20. aldar eitt besta svæði til heyframleiðslu. Rústirnar af gamla bænum standa enn og eru friðaðar. Arnarbælisforir eru mýrlendi á þessu frjósama landsvæði þar sem fjölbreytt fuglalíf er að finna.
Fyrir börnin
Reykjafoss í Hveragerði
Lystigarðurinn í Hveragerði er í miðju bæjarins og markast af Breiðumörk, Skólamörk og Varmá. Ræktun garðsins hófst þar árið 1983 og er þar nú fallegur gróður með leiksvæði, bekkjum og borðum sem ferðamenn geta nýtt sér til útivistar. Í ánni Varmá rennur Reykjafoss. Á bakka Varmár neðan við Reykjafoss má sjá leifar af gömlum húsgrunni. Grunnurinn markar upphaf byggðar í Hveragerði því þar var ullarverksmiðja sem reist var árið 1902 og nýtti fallorku fossins. Innar í Varmárgilinu eru uppistandandi veggir rafstöðvar sem gerð var árið 1929. Þaðan má rekja undirstöður fallstokksins að heillegri stíflunni neðan Hverahvamms.
Náttúra
Reykjadalur
Reykjadalur er án efa vinsælasta útivistarsvæðið í Ölfusi. Þar er að finna margar merktar gönguleiðir um stórbrotið háhitasvæðið og hægt er að baða sig í heitri á í dalnum. Orkuveita Reykjavíkur hefur merkt gönguleiðir í dalnum sem og á Hengilssvæðinu öllu. Hægt er að finna göngukort á vef þe irra.
Söfn
Skjálftinn 2008
Söfn
Fischersetur Selfossi
Handverk og hönnun
Ullarverslunin Þingborg
Söfn
Listasafn Árnesinga
Verslun
Ölverk Pizza & Brugghús
Kaffihús
Hendur í höfn
Farfuglaheimili og hostel
Bakki Hostel & Apartments
Söfn
Konubókastofa
Sýningar
Hespuhúsið
Handverk og hönnun
Handverksskúrinn
Aðrir
- Asutur-Meðalholt
- 801 Selfoss
- 694-8108, 864-4484, 892-2702
- Fákasel, Ingólfshvoli í Ölfusi
- 816 Ölfus
- 847-3460
Veitingahús
Hafið Bláa
Veitingahús
Ingólfsskáli - Viking Restaurant
Verslun
Ölverk Pizza & Brugghús
Veitingahús
Grímsborgir veitingastaður
Bændagisting
Kaffihús
Hendur í höfn
Farfuglaheimili og hostel
Bakki Hostel & Apartments
Hótel
Hotel South Coast
Veitingahús
HVER Restaurant
Aðrir
- Óseyrarbraut 15
- 815 Þorlákshöfn
- 483-3801, 8943858
- Eyravegur 3 neðri hæð
- 800 Selfoss
- 7744434
- Sunnumörk 2-4
- 810 Hveragerði
- 483-1919
- Öndverðarnes
- 805 Selfoss
- 698-6918
- Sunnumörk 2
- 810 Hveragerði
- 7773737
- Eyravegur 2
- 800 Selfoss
- 4802500
- Austurvegur 46
- 800 Selfoss
- 570-6763, 570-6763
- Eyrarvegur 8
- 800 Selfoss
- 845-4252, 482-4099
- Austurvegur 22
- 800 Selfoss
- 482-2899, 896-1250
- Eyravegur 32
- 800 Selfoss
- 8955010
- Þrastarlundur
- 801 Selfoss
- 8667781
- Austurvegur 7
- 800 Selfoss
- 4821266
- Breiðumörk 2
- 810 Hveragerði
- 851-1415
- Selvogsbraut 41
- 815 Þorlákshöfn
- 483-5950, 892-2207
- Austurvegur 22
- 800 Selfoss
- 482-3079
- Tryggvatorg
- 800 Selfoss
- 4821390
- Eyrarvegur 2
- 800 Selfoss
- 530-7071
- Tryggvagötu
- 800 Selfoss
- 482-1782
- Grímsnes
- 801 Selfoss
- 480-5500
- Sunnumörk 2
- 810 Hveragerði
- 5377800
- Selvogsbraut 41
- 815 Þorlákshöfn
- 8228998
- Þingborg
- 801 Selfoss
- 691-7082
- Breiðamörk 3
- 810 Hveragerði
- 4833301
- Arnberg
- 800 Selfoss
- 480-1300, 840-1749
- Skíðaskálinn í Hveradölum
- 110 Reykjavík
- 8948060, 567 2020
- Austurvegur 3
- 800 Selfoss
- 482-3330
- Breiðamörk 10
- 810 Hveragerði
- 4831105
- Austurvegur 31b
- 800 Selfoss
- 4821007
- Hverhamar
- 810 Hveragerði
- 8459193
- Kríumýri
- 801 Selfoss
- 897-7643 , 899-7643
- Unubakki 4
- 815 Þorlákshöfn
- 483-3320
- Eyravegur 2
- 800 Selfoss
- 581-2345
- Larsenstræti
- 800 Selfoss
- 483-1919
- Austurvegur 48
- 800 Selfoss
- 482-1005