Flýtilyklar
Local Guide - of Vatnajökull
Jöklaferðir í ríki Vatnajökuls
www.localguide.is
info@localguide.is
sími: 8941317
Um:
Local Guide of Vatnajökull er lítið fjölskyldufyrirtæki á Suðausturlandi og hefur verið starfrækt frá árinu 1991. Rætur fyrirtækisins liggja í Öræfum og hafa fimm kynslóðir fjölskyldunnar farið í leiðangra um jökulinn og fyrirtækið er nú í eigu þriðju kynslóðar.
Local Guide býr yfir mikilli þekkingu um allt Vatnajökulssvæðið. Sérhæfing okkar eru íshellaferðir á veturna og ísgönguferðir á sumrin. Við tökum einnig að okkur sérferðir fyrir hópa og fjölskyldur, tindaleiðangra, klettaklifurnámskeið á Hnappavöllum, ljósmyndaferðir, gönguferðir, jeppaskutl og trúss; á Vatnajökli og sem dæmi í umhverfi Skaftafells, Núpstaðarskógs og Lakagíga.
Ekki hika við að setja þig í samband við okkur og við munum með ánægju sýna þér þessa mikla náttúruperlu sem Vatnajökulsþjóðgarður býður uppá.
Opnunartími:
Jökla-, ísgöngu- og ísklifurferðir: allt árið
Íshellaferðir: október - april
Gönguferðir og klettaklifurnámskeið: á sumrin
Við sjáum einnig um jeppaskutl og trúss um allt Vatnajökulssvæðið.
Hofsnes

Jöklagöngur á sumartilboði
Við hjá Local Guide bjóðum uppá jöklagöngur og ísklifurferðir á Falljökull sem er einn af skriðjöklum Vatnajökuls.
Við bjóðum uppá 20% afslátt af öllum okkar almennu brottförum í sumar, afsláttarkóðinn er 2020
Einnig erum við með góð fjölskyldu og hópatilboð endilega kíkið á heimasíðuna okkar og sjáið tilboðin, verð frá 5.000 kr á mann.
Local Guide - of Vatnajökull - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands