Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

SVEITALÍF 2

26.-27. október

Þeir eru heimsfrægir á landsbyggðinni og eiga met í að vera í öðru sæti í öllum keppnum sem þeir taka þátt í. Saman eru þeir hinsvegar á toppnum og hafa aldrei verið betri. Vinirnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen tilheyra ýmsum minnihlutahópum en þegar kemur að því að skemmta fólki þá kunna þeir sitt fag. Eftir afar vel heppnaða tónleikaferð um landið sumarið 2020 eru þeir mættir aftur á húsbílnum og þeysast um landið með hljóðfærin og góða skapið í farteskinu. Hér er á ferðinni skemmtun sem enginn má láta framhjá sér fara á ferð um landið í sumar.
Það verður dansað, sungið og hlegið. Svo einfalt er það.

Lýsing: Jói Hæna
Hljóð: Gulli Gaddavír
Sviðsmynd: Bibba broddur
Förðun: Sigga sæta
Framleiðandi: Dóri Speni

Sveitalíf á facebook:
https://www.facebook.com/sveitalif

Instagram:
Friðrik Ómar: fromarinn
Jógvan Hansen: jogvan

Staðsetningar
26. október: Hveragerði, Skyrgerðin
27. október: Selfoss, Hótel Selfoss