Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sumardagskrá í Alviðru: Ætihvönn til matar, litunar og heilsubótar

21. ágúst kl. 14:00-16:00

Laugardaginn 21. ágúst kl. 14-16 fræðir Eva Þorvaldsdóttir líffræðingur og safnkennari hjá Náttúruminjasafni Íslands gesti og gangandi um ætihvönn. Fjallað verður um ætihvönn til matar, liturnar og heilsubótar í Alviðru, fræðslusetri Landverndar.

Sýnikennsla – Ætihvönn til matar og jurtalitunar

Ætihvönn var áður fyrr mikilvæg matjurt á Íslandi. Hún vex víða í landi Alviðru og þar verða laufblöð og stönglar skornir auk þess sem grafnar verða upp rætur. Í fræðsluhúsi Landverndar verður sýnikennsla um það hvernig má nota ætihvönn til matar og jurtalitunar.

Alviðra fræðslusetur Landverndar stendur í sumar fyrir metnaðarfullri og áhugaverðri sumardagskrá fyrir gesti og gangandi. Alviðra á í góðu samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands um dagskránna, en þessar stofnanir leggja sumardagskrá Alviðru til sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum.

Alviðra er í Ölfusi, stendur undir Ingólfsfjalli, gegnt Þrastalundi.

Þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin.

Verið velkomin.

GPS punktar

N64° 0' 2.002" W20° 59' 1.255"

Staðsetning

Alviðra umhverfisfræðslusetur Landverndar