Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Stefnumót við Múlatorg – Sumarhátíð Sumarhússins og garðsins

17. júlí kl. 11:00-17:00

Stefnumót við Múlatorg – Sumarhátíð Sumarhússins og garðsins á laugardag 17. júlí kl. 11-17

Laugardaginn 17. júlí kl. 11-17 stendur Sumarhúsið og garðurinn fyrir árlegri sumarhátíð á Selfossi, Stefnumóti við Múlatorg. Hátíðin hefur verið árlegur viðburður frá árinu 2006 og laðað að sér fjölda gesta.

Á Stefnumóti við Múlatorg verður boðið upp á lifandi tónlist, allra handa fræðslu og uppifun. Í ár koma fram þau Unnur Malín Sigurðardóttir söngvaskáld og tónlistarmaður og Linus Orri Gunnarsson Cederborg fjöltónlistarmaður. Unnur Malín leikur frumsamin lög og flytur tóngjörning sem spunninn er á staðnum. Linus Orri er fjöllistamaður og leikur á fjölda hljóðfæra, en sum þeirra býr hann til sjálfur. Með honum kemur fram Josie Anne þjóðlagadanskennari sem kennir skoskan þjóðdans. Þá munu fagmenn í garðyrkju og skógrækt og handverksfólk fræða gesti.

Á sumarhátíðinni er veitt árlega viðurkenningu Sumarhússins og garðsins, Rósin fyrir framkvæmdir, hugmyndaauðgi og áhugaverðar útfærslur í garðinum eða sumarhúsalandinu.

„Markaðurinn verður æðislegur og mjög fjölbreyttur í ár. Við erum í góðri samvinnu við sveitafélagið Árborg og fáum að láni söluskúra hjá þeim og setjum upp markaðstöld fyrir sölufólkið. Við bjóðum handverksfólki og listafólki að selja og kynna vöru sína. Einnig þeim sem stuðla að endurnýtingu og fyrirtækjum með vörur fyrir garð- og sumarhúsaeigendur,“ segir Auður I. Ottesen.

Sumarhátíðin er sannkölluð veisla fyrir fagurkera, tónlistarunnendur og garðáhugafólk. Hún hefst klukkan 11 og stendur til 17 og er opin öllum.

Nánari upplýsingar veitir:
Auður I. Ottesen, audur@rit.is, s. 578 4800 og 824 0056

 

GPS punktar

N63° 56' 3.422" W21° 0' 37.815"

Staðsetning

Sumarhúsið og garðurinn | Múlatorg

Sími