Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kia Gullhringurinn

10. júlí kl. 18:00-19:00

KIA Gullhringurinn er umfangsmesta, vinsælasta og skemmtilegasta hjólreiðakeppni landsins. KIA Gullhringurinn var fyrst haldin árið 2012 og hefur verið haldin árlega síðan. Keppnin hefur verið haldin á Laugarvatni en nú árið 2021 verður breytt um umhverfi og verður KIA Gullhringurinn á Selfossi í Árborg. Keppnin er haldin í miðbæ Selfoss. Keppnisbrautirnar munu liggja um láglendið í kring og keppendur munu þræða sig um Árborgarsvæðið með viðkomu á Stokkseyri og Eyrarbakka. Boðið verður upp á keppnisbraut fyrir krakka og fjölskylduvæna skemmtibraut. Með því að færa þetta í Árborg var hægt að stækka keppnina og bæta við hjólaleiðum. Einnig gefur þetta tækifæri á að loka hjólaleiðum og bæta þannig öryggi keppenda.

Mottó KIA Gullhringsins er “Allir hjóla, allir vinna og allir velkomnir” og er hægt að velja sér vegalengd eftir getu hvers og eins. Allt þekktasta hjólreiðafólk landsins hefur tekið þátt í keppninni í gegnum árin og það sem skemmtilegra er að nýliðar í sportinu hafa notað KIA Gullhringinn sem fyrstu keppnina sína og þannig formlega innkomu sína í sportið.

Nánar upplýsingar https://www.vikingamot.is/kia-gull/

GPS punktar

N63° 56' 7.155" W21° 0' 6.927"

Staðsetning

Selfoss