Fimmtudagskvöldið 15. júlí ætla Hipsumhaps að halda tónleika í Skyrgerðinni í Hveragerði.
Hipsumhaps gáfu nú á dögunum út plötuna ‘Lög síns tíma’ sem að hefur fengið frábærar móttökur. Platan fylgir á eftir frumburðinum
‘Best gleymdu leyndarmálin’ sem að innihélt lög á borð við ‘LSMLÍ (lífið sem mig langar í)’, 'Bleik ský' og ‘Fyrsta ástin’.
Húsið opnar kl. 20:00 og hefjast tónleikarnir kl. 20:30. Miðasala fer fram á Tix.is.