Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

GÖNGUFERÐIR Í HRUNAMANNAHREPPI - Ganga í Kerlingarfjöllum

17. júlí kl. 10:00

17. júlí. Ganga í Kerlingarfjöllum. Kerling - Hveradalir – Dagsganga

Lagt af stað frá Flúðum árla dags. Ekið um Kjalveg í Kerlingarfjöll, báðar leiðir. Kerlingarfjöll eru rómuð fyrir náttúrufegurð og andstæður í náttúrufari og eru fjöllin sannkölluð kóróna Hrunamannahrepps. Áætlað er að ganga að Kerlingu sem er móbergsdrangi sem fjöllin eru nefnd eftir. Einnig verður gengið um Hveradali og verður nánari göngulýsing auglýst síðar. Áætlað er að gangan telji 10 – 15 km. Panta þarf í þessa ferð í síma 6923882/6995178.

Gera þarf ráð fyrir einhverjum kostnaði vegna aksturs sem verður auglýstur síðar.

GPS punktar

N64° 7' 30.000" W20° 21' 28.800"

Staðsetning

Hrunamannahreppur

Sími