Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Flugeldasýning Jökulsárlón 2022

13. ágúst kl. 22:30-23:00

Upplýsingar um verð

1500 ISK
Laugardagskvöldið 13. ágúst 2022 verður árleg flugeldasýning Björgunarfélags Hornafjarðar haldin á Jökulsárlóni.

Sýningin byrjar kl. 22:30 og aðgangseyrir er 1500 kr á mann, frítt fyrir 12 ára og yngri. Allur ágóði sýningarinnar fer í rekstur og tækjakaup fyrir Björgunarfélag Hornafjarðar.

Flugeldasýningin er orðin stærsta fjáröflun Björgunarfélags Hornafjarðar. Ár eftir ár mætir fólk á Jökulsárlón til að vera vitni að þessu magnaða sjónarspili. Flugeldum er skotið upp af prömmum úti á lóninu í myrkri svo bjarminn frá flugeldunum kastast á ísjaka á lóninu og speglast í vatninu.
 
Miðar fara í sölu á forsölustöðum sem verða auglýstir síðar. Við mælum með að fólk kaupi miða í forsölu til að stytta biðtíma við komu á lónið.
 
Aðalstyrktaraðili sýningarinnar í ár er Glacier Lagoon, Jökulárlón ferðaþjónusta.

Við hlökkum til að sjá ykkur 14. ágúst!

Björgunarfélag Hornafjarðar
bf.hornafjardar@gmail.com

GPS punktar

N64° 4' 36.104" W16° 13' 47.375"

Staðsetning

Glacier Lagoon, Sveitarfélagið Hornafjörður, Eastern Region, Iceland