Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Búkalú í Friðheimum

7. október kl. 20:00-21:55

Upplýsingar um verð

3900 krónur
Búkalú - glæsisýning Margrétar Maack snýr aftur eftir barnsburð, heimsfaraldur og gott hlé. Loksins látum við draumin rætast og bjóðum upp á heimsklassakabarettsýningu í gróðurhúsinu á Friðheimum.
Með í för eru bestu, skemmtilegustu, fegurstu og fyndnustu kabarettlistamenn landsins ásamt erlendum gestum. Sýningin blandar saman burleski, kabarett, dragi og sirkus svo úr verður einstakur fullorðinskokkteill.
 
Fram koma: Kabarettan Bibi Bioux, húllabomban Bobby Michelle, sirkusfolinn Daniel Pilkington, skoska boylesque-undrið Tom Harlow og burlesqueskvettan Margrét sjálf.
 
Sýningin er bönnuð innan 20 ára og hentar ekki þeim sem hræðast undur mannslíkamans. Hún hentar einstaklega vel fólki sem tekur lífinu létt, en fíflagangi grafalvarlega. Miðaverð er 3900 krónur og miðasalan er á https://tix.is/is/event/12022/

 

 

GPS punktar

N64° 10' 37.795" W20° 26' 42.073"

Staðsetning

Friðheimar

Sími