Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Brúarhlaup á Selfossi

August 6 at 11:00-15:00

Hið árlega Brúarhlaup á Selfossi fer fram laugardaginn 6. ágúst 2022. Árið 2014 var dagsetningu hlaupsins og hlaupaleiðum breytt og fer það nú fram, sjöunda árið í röð, á sama tíma og Sumar á Selfossi og Olís mót í knattspyrnu fer fram á Selfossi. Mikil ánægja var með breytingarnar á sínum tíma og skapaðist mikil stemmning á Selfossi í tengslum við hlaupið.

Vegalengdir

Hlaupavegalengdir eru 10 km, 5 km, 2,8 km ásamt 800 m Sprotahlaupi fyrir krakka 8 ára og yngri.
Einnig fer fram keppni í 5 km hjólreiðum (skemmtihjólreiðar, ekki hröð keppnisbraut).
Allar hlaupaleiðir eru löggildar og mældar upp af viðurkenndum aðila. Tímataka er í öllum vegalengdum. (Flögur)

Tímasetningar og staðsetningar
  • Hlauparar í 10 km verða ræstir á Ölfusárbrú kl. 11:30.
  • Hlauparar í 5 km hlaupi verða ræstir kl. 12:00 undir/við Ölfusárbrú.
  • Keppendur í 5 km hjólreiðum verða ræstir kl. 11 undir/við Ölfusárbrú.
  • Keppendur í 2,8 km skemmtiskokki verða ræstir í miðbæjargarði Selfoss kl. 11:30.
  • Keppendur í 800m Sprotahlaupi verða ræstir í miðbæjargarði Selfoss kl. 12:30.

Allir þátttakendur koma í mark í Sigtúnsgarðinum í miðbæ Selfoss.

Flokkaskipting og verðlaun

Flokkaskipting er í 5 og 10 km hlaupi og eru veittir verðlaunapeningar fyrir 1.-3. sæti í hverjum aldursflokki og einnig fyrir 1.-3. sæti óháð aldri, karla og kvenna, í hvorri vegalengd.

Verðlaunapeningar eru veittir fyrir 1.-3. sæti í 2,8 km hlaupi og hjólreiðum, í karla og kvennaflokki.

Að auki verða dregin út útdráttarverðlaun, úr hópi keppenda og þeim heppnu afhent þau um leið og þeir koma í mark. Verðlaunaafhending fer fram í miðbæjargarði Selfoss, við endamark hlaupsins, kl.13.00.

Skráning og verð

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu fljótlega og í Landsbankanum á Selfossi meðan forskráning er í gangi, en einnig á hlaupdag frá kl. 09:00 í Landsbankanum á Selfossi. Forskráningu lýkur á netinu, föstudaginn 5. ágúst kl. 16.

Skráningargjöld í forskráningu:

  • 1.500 kr fyrir 16 ára og eldri í 2,8 km, 5 km og hjólreiðar.
  • 1.000 kr fyrir 15 ára og yngri 2,8 km, 5 km og hjólreiðar.
  • 1.000 kr í 800m krakka Sprotahlaup
  • 3.500 kr fyrir alla þátttakendur í 10 km hlaupi.

 

Veittur er fjölskylduafsláttur þannig að hjón borga fullt gjald, fyrir sig og tvö börn, en ef um fleiri börn er að ræða fá þau frítt.

Skráningargjöld eftir að forskráningu lýkur

  • 2.000 kr fyrir 16 ára og eldri í 2,8 km, 5 km og hjólreiðar.
  • 1.500 kr fyrir 15 ára og yngri 2,8 km, 5 km og hjólreiðar.
  • 1.500 kr í 800m krakka Sprotahlaup
  • 4.500 kr fyrir alla þátttakendur í 10 km hlaupi.

 

Þeir sem ekki vilja fá bol merktan hlaupinu geta afþakkað hann í forskráningu og lækkar þá keppnisgjaldið um 500 kr. Bolirnir eru úr dry-fit efni sem notað er í hlaupafatnað. Í Sprotahlaupinu er bolir merktir Sprota og fá allir þátttakendur þar bol. Ekki er hægt að afþakka bol í því hlaupi gegn lækkun keppnisgjalds.

Afhending keppnisgagna, er á hlaupadag í Landsbankanum á Selfossi, frá kl. 09:00. Allir þátttakendur fá við skráningu keppnisbol og verðlaunapening við komu í mark.

Annað

Allir keppendur fá frítt í sund eftir hlaup, í boði sveitarfélagsins Árborgar, gegn framvísun keppnisnúmers. Úrslit verða birt á hlaup.is og timataka.net. Frekari upplýsingar gefur Helgi Sigurður Haraldsson, helgihar@simnet.is og í síma 825-2130.

GPS points

N63° 56' 12.513" W21° 0' 12.715"

Location

Selfoss, Sveitarfélagið Árborg, Southern Region, 800, Iceland