Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Blómstrandi dagar Hveragerði 2022

August11 - 14

Blómstrandi dagar verða haldnir 11 .- 14. ágúst 2022.

Við bjóðum gesti velkomna á Bæjarhátíðina, Blómstrandi daga, í Hveragerði . Bæjarbúar taka virkan þátt í hátíðinni og framboð menningarviðburða hefur aukist ár frá ári jafnt og gestafjöldi. Áhersla er lögð á uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum. Áhugaverðar listsýningar og fjölbreyttir tónlistarviðburðir eru í bænum þessa daga ásamt heilsutengdum atriðum fyrir alla aldurshópa.

Dagskráin er fjölbreytt.

Blómstrandi dagar er fjölskyldu, menningar og heilsuhátíð án áfengis og eru foreldrar hvattir til þess að virða útivistartíma barna og unglinga.

Bæjarbúar leggja hátíðinni lið með því að skreyta sitt hverfi og sinn garð. Mikil stemning hefur líka myndast í kringum bílskúrsmarkaði og gallerí út um allan bæ.

Verðlaun verða veitt fyrir fallegustu, frumlegustu og mestu skreytingarnar. Einnig verður valin fallegasta gatan og fá vinningshafar grillkjöt frá SS í verðlaun.

Alla helgina verður líf og fjör í bænum fyrir alla fjölskylduna

Fylgist með hátíðinni á Facebook síðu Blómstrandi daga

GPS points

N63° 59' 43.759" W21° 11' 4.479"

Location

Hveragerði, Austurmörk, Hveragerðisbær, Southern Region, 810, Iceland