Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

VERKEFNISSTJÓRI DMP ÁÆTLANA

Markaðsstofa Suðurlands óskar eftir að ráða verkefnisstjóra DMP áætlana (Destination Management Plan) á Suðurlandi. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við gerð stefnumótandi stjórnunaráætlunar áfangastaðar og er ráðið til eins árs með möguleika á framlengingu.

Markaðsstofa Suðurlands óskar eftir að ráða verkefnisstjóra DMP áætlana (Destination Management Plan) á Suðurlandi. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við gerð stefnumótandi stjórnunaráætlunar áfangastaðar og er ráðið til eins árs með möguleika á framlengingu. 

Verkefnið kallast DMP og er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þ.m.t. þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis. DMP er sameiginleg stefnuyfirlýsing sem hefur það að markmiði að stýra uppbyggingu og þróun svæðis yfir ákveðinn tíma, skilgreina hlutverk hagsmunaaðila, tiltaka beinar aðgerðir sem hver og einn hagsmunaaðila ber ábyrgð á og hvaða bjargir/auðlindir þeir hyggjast nýta við þá vinnu. 

Verkefnisstjórar DMP áætlana sjá um áætlunargerðina sjálfa í samvinnu við vinnuhópa. Við vinnuna er stuðst við verkfærakistu sem kynnt verður á vinnustofu fyrir verkefnisstjóra. 

Verkefnið er unnið í samstarfi við Ferðamálastofu og Stjórnstöð ferðamála undir leiðsögn Tom Buncle ráðgjafa sem stýrir verkefninu á landsvísu. 

Helstu verkefni

  • Vinna að stefnuyfirlýsingu um uppbyggingu og þróun Suðurlands sem ferðamannasvæðis
  • Leiða áætlunargerð, skipuleggja og samhæfa þá þætti sem hafa áhrif á upplifun ferðamanna
  • Skilgreina hlutverk hagsmunaaðila, skipuleggja aðgerðir og greina þarfir
  • Framkvæmd DMP í samræmi við stefnu verkefnisins
  • Samskipti við DMP verkefnisstjóra um land allt, ferðaþjónustuna og stoðkerfi ferðaþjónustunnar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking á verkefnastjórnun
  • Þekking á Suðurlandi og ferðaþjónustu
  • Starfið krefst ferðalaga og sveigjanlegs vinnutíma
  • Umsækjandi þarf að hafa góða skipulagshæfileika, geta sýnt frumkvæði og eiga auðvelt með að vinna í teymi 

Umsóknarfrestur er til 6. mars og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar veitir Dagný Hulda Jóhannsdóttir s: 560 2030, dagny@south.is

Umsóknir sendast til dagny@south.is