Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Markaðsstofa Suðurlands óskar eftir að ráða í starf verkefnastjóra

Starfið er fjölbreytt og spennandi og kemur verkefnastjóri að fjölmörgum og krefjandi verkefnum Markaðsstofunnar. Verkefnastjóri þarf að geta unnið sem staðgengill framkvæmdastjóra.

Starfið er fjölbreytt og spennandi og kemur verkefnastjóri að fjölmörgum og krefjandi verkefnum Markaðsstofunnar.
Verkefnastjóri þarf að geta unnið sem staðgengill framkvæmdastjóra.

Meðal verkefna eru:
• Samskipti við hagsmunaaðila
• Ráðgjöf
• Verkefnastjórn
• Markaðs- og kynningarmál
• Blaðamannafyrirspurnir og ferðir

Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, (s.s.markaðsfræði,
ferðamálafræði, verkefnastjórnun eða sambærilegt)
• Mikið sjálfstæði og frumkvæði
• Lipurð í samskiptum
• Tungumálakunnátta
• Sveigjanleiki í starfi
• Góð þekking á Suðurlandi
• Reynsla af rekstri og/eða stjórnunarstörfum æskileg

Starfssvæði Markaðsstofunnar nær frá Selvogi í vestri að Eystra-Horni að Lóni í austri.
Um er að ræða fullt starf og er umsóknarfrestur til og með 30. júní 2016. Viðtöl munu fara fram í ágúst og þarf viðkomandi að geta hafið störf 1. september.

Umsóknir sendist rafrænt á south@south.is.

Nánari upplýsingar um Markaðsstofuna má finna á heimasíðunni www.south.is/markadsstofan.

Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri, Dagný H. Jóhannsdóttir dagny@south.is eða í síma 560-2030.