Flugeldasýning á Jökulsárlóni 25. ágúst
Hin árlega flugeldasýning á Jökulsárlóni verður haldin laugardagskvöldið 25. ágúst næstkomandi. Þetta er í þrettánda skipti sem flugeldasýningin er haldin og margir koma ár eftir ár til að upplifa stórkostlegt sjónarspil þegar flugeldar og kerti lýsa upp þennan fallega stað. Flugeldasýningin er haldin í samstarfi Björgunarfélags Hornafjarðar, ferðaþjónustunnar Jökulsárlóns og Ríkis Vatnajökuls. Aðgangseyrir er 1.000 krónur líkt og undanfarin ár og rennur óskiptur til Björgunarfélags Hornafjarðar. Sjáið nánari upplýsingar um flugeldasýninguna hér<http://www.visitvatnajokull.is/Whatson/View/3> og hér<https://www.facebook.com/events/498137483536951/>.