Föstudaginn 31. ágúst næstkomandi fer Flóamótið í frjálsum íþróttumfram á íþróttavellinum við Þjórsárver. Mótið hefst að lokinni kennslu íFlóaskóla. Verður nánar auglýst síðar í skólanum.Ungmennfélögin Baldur, Samhygð og Vaka standa fyrir mótinu og er öllumbörnum á grunnskólaaldri í Flóahreppi boðið að taka þátt og spreyta sig ífjölbreyttri og skemmtilegri keppni.Keppt mun verða í eftirfarandi greinum:1.-4. bekkur: 60 m hlaup, langstökk, 400 m hlaup.5.-7. bekkur: 60 m hlaup, langstökk, kúluvarp, 400 m hlaup.8.-10. bekkur: 100 m hlaup, langstökk, kúluvarp, 800 m hlaup.Foreldrar eru hvattir til að fylgja börnum sínum á mótið, þeim tilstuðnings og hvatningar. Sérstaklega er þess óskað að foreldrar barnaí 1. - 4. bekk fylgi sínum börnum eftir. Börnin taka þátt í mótinu áábyrgð foreldra sinna ekki ungmennafélaganna.Að keppni lokinni verður öllum keppendum veitt viðurkenning fyrirþátttökuna auk þess sem boðið verður upp á hressingu.Ungmennafélögin