Staðsetning: Stóra-Ármót
Baráttan við illgresið - Þættir sem draga úr tjóni óæskilegra plantna Námskeið fyrir bændur og áhugafólk um jarðrækt. Í námskeiðinu verður fjallað um þætti sem skipta miklu máli þegar draga á úr tjóni af illgresi, svo sem í tún- garð- og kornrækt. Einnig verður fjallað um mögulega illgresiseyðingu í skógrækt og í útjörð. Helstu efnisatriði: 1. Jarðvinnsla og aðrir ræktunartæknilegir þættir sem draga úr tjóni af illgresi. 2. Plöntutegundir sem verða oft að illgresi, líffræði þeirra, styrk- og veikleikar. 3. Illgresiseyðar, sem leyft er að nota hér á landi. 4. Tækni við dreifingu illgresiseyða, hvenær á að dreifa, ending illgresiseyða. 5. Illgresiseyðar sem líklega koma á markað í næstu framtíð. Kennari: Jón Guðmundsson, plöntulíffræðingur. Tími: Mið. 25. apr. kl. 13:00-16:30 (4,5 kennslustundir) á Stóra-Ármóti Verð: 7.500 kr (kennsla, gögn og veitingar) Æskilegt að skrá sig fyrir 18. Apríl Skráningar: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 – fram komi fullt nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 3.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn