Tálgunarnámskeið - Ferskar viðarnytjar

13.04.2012 - 14.04.2012

Tálgunarnámskeið - ferskar viðarnytjar

Umsjón: Björgvin Örn Eggertsson

       Námskeið hefst þann: 13.4.2012       

       Staðsetning: LbhÍ Reykjum

Námskeið sem hefur þróast upp úr námskeiðinu Lesið í skóginn tálgað í tré sem hefur verið kennt í frá árinu 2001 og hefur notið mikilla vinsælda
 
Námskeiðið er öllum opið. Það hentar t.d  kennurum, sumarbústaðafólki, skógareigendum, skógræktarfólki, ömmum, öfum  og öðrum er vilja læra hvernig hægt er að nota ferskan við úr skóginum, garðinum eða sumarbústaðarlandinu. 
 
Á námskeiðinu:
 
•lærir þú öruggu hnífsbrögðin sem auka afköst og öryggi í tálgun með hníf og exi
•kynnist þú ýmsum íslenskum viðartegundum, eiginleikum þeirra og nýtingarmöguleikum
•þú lærir að tálga nytjahluti og skrautmuni úr efni sem almennt er kallað “garðaúrgangur”
•þú lærir að grisja tré og hvar má finna efni í einstök tálguverkefni
•þú lærir að umgangast og hirða bitáhöld í ferskum viðarnytjum, hnífa, klippur, exi og sagir
•þú lærir að fullgera tálguhluti, þurrka, pússa og bera á
•þú lærir að lesa í skógarefnið út frá útliti, eiginleikum og notagildi gripanna
•þú lærir að skefta, búa til sleif, fugl, bolla, snaga eða það sem hugur þinn og geta leyfa
 
Allt efni og áhöld eru til staðar á námskeiðinu. Verið í vinnufatnaði þegar þið komið eða takið með ykkur svuntu og fatnað eftir veðri vegna skógarferðar. Hægt verður að kaupa tálguhníf á námskeiðinu fyrir þá er vilja.
 
Kennari: Ólafur Oddsson fræðslufulltrúi Skógræktar  ríkisins og verkefnisstjóri Lesið í skóginn.
 
Tími: Fös. 13. apríl, kl. 16:00-19:00 og  lau. 14. apríl, kl. 9:00-16:00 (14 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum, Ölfusi.
 
Verð: 20.500 kr. (Kaffi, hádegismatur og efni innifalin í verði)
 
Skráningafrestur er til 2. apríl.
 
Staðfestingagjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 4.300kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590.
 
Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000.

 

Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000

Allir Viðburðir

norrænt vinabæjarmót
18.06.13 - 20.06.13
Yoga í Reynisfjöru í Mýrdal
21.06.13 - 23.06.13
Höfn í Hornafirði
28.06.13 - 30.06.13
Landsmót UMFÍ á Selfossi
04.07.13 - 06.07.13
Ferðafélag Árnesinga
06.07.13 - 06.07.13
Bryggjuhátíðin á Stokkseyri
12.07.13 - 14.07.13
Safnadagurinn
14.07.13 - 14.07.13
Ferðafélag Árnesinga
27.07.13 - 27.07.13
Höfn í Hornafirði
02.08.13 - 04.08.13
Höfn í Hornafirði
02.08.13 - 04.08.13
Sumar á Selfossi og Delludagur
08.08.13 - 11.08.13
Meistaradeild Olís á Selfossi
09.08.13 - 11.08.13
Aldamótahátíð á Eyrarbakka
10.08.13 - 11.08.13
Tvær úr tungunum
17.08.13 - 17.08.13
Ferðafélag Árnesinga
24.08.13 - 24.08.13
Ferðafélag Árnesinga
07.09.13 - 07.09.13
Brúarhlaupið á Selfossi
07.09.13 - 07.09.13
Ferðafélag Árnesinga
21.09.13 - 21.09.13
Ferðafélag Árnesinga
05.10.13 - 05.10.13
Ferðafélag Árnesinga
19.10.13 - 19.10.13
Safnahelgi á Suðurlandi
01.11.13 - 03.11.13
Ferðafélag Árnesinga
02.11.13 - 02.11.13
Jólaljósin kveikt í Árborg
14.11.13 - 14.11.13
Ferðafélag Árnesinga
16.11.13 - 16.11.13
Jólatorgið opnar
07.12.13 - 07.12.13
Ferðafélag Árnesinga
11.12.13 - 11.12.13