Að breyta sandi í skóg - endurheimt skóglendis

13.04.2012 - 14.04.2012

Að breyta sandi í skóg - endurheimt skóglendis

Umsjón: Björgvin Örn Eggertsson

       Námskeið hefst þann: 13.4.2012       

       Staðsetning: Reykir

Haldið í samvinnu við Hekluskóga
 
Námskeiðið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á uppgræðslu og trjárækt á rýru landi. Námskeiðið er hluti af námskeiðaröð Grænni skóga I á Suður- og Vesturlandi.
Fjallað verður um vaxtarskilyrði á rýru landi, þá þætti sem móta það (jarðveg, rof, frosthreyfingar, vind og vatn) og leiðir til að bæta þau. Kynntar verða helstu aðferðir og tegundir sem notaðar eru við uppgræðslu á rýru og örfoka landi og fjallað um þá þætti sem ráða vali á aðferðum hverju sinni. Sérstaklega verður fjallað um leiðir til að koma trjágróðri í örfoka land og hvernig hægt sé að stuðla að sjálfsáningu þeirra trjá- og runnategunda sem notaðar eru í Hekluskógaverkefninu. Aðferðir við gróðursetningu og beinstungu græðlinga verða sýndar og sagt verður frá því hvernig haga skuli að áburðargjöf á plöntur og græðlinga.
Farið verður yfir hvernig landeigendur á Hekluskógasvæðinu geta tengst eða komið að Hekluskógaverkefninu. Farið verður í vettvangsferð á Þorlákshafnasanda við Þrengslavegamót og ræktun við erfiðar aðstæður skoðuð.
 
Kennarar: Ása L. Aradóttir prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, Hreinn Óskarsson skógfræðingur hjá Hekluskógum og Úlfur Óskarsson lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands.
 
Tími: Fös. 13. apr. kl. 16:00-19:00 og lau. 14. apr. kl 9:00-16:00 hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi (14 kennslustundir).
 
Verð: 18.900 kr. (Innifalið eru námskeiðsgögn, kaffi á námskeiðinu og matur í hádeginu á laugardeginum).
 
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 8.900kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590.
 
Minnum bændur á Starfsmenntasjóð bænda www.bondi.is
 

Allir Viðburðir

Sólheimaleikhúsið
05.05.13 - 02.06.13
Hafnardagar í Þorlákshöfn
30.05.13 - 02.06.13
Hálandaleikar á Selfossi
01.06.13 - 01.06.13
Sjómannadagurinn
02.06.13 - 03.06.13
Kótelettan 2013
07.06.13 - 09.06.13
Vík í Myrdal landsmót 50+
07.06.13 - 09.06.13
Ferðafélag Árnesinga
08.06.13 - 08.06.13
17. JÚNÍ í Árborg 2013
17.06.13 - 17.06.13
norrænt vinabæjarmót
18.06.13 - 20.06.13
Yoga í Reynisfjöru í Mýrdal
21.06.13 - 23.06.13
Höfn í Hornafirði
28.06.13 - 30.06.13
Landsmót UMFÍ á Selfossi
04.07.13 - 06.07.13
Landsmót UMFÍ Selfossi
04.07.13 - 07.06.13
Ferðafélag Árnesinga
06.07.13 - 06.07.13
Bryggjuhátíðin á Stokkseyri
12.07.13 - 14.07.13
Safnadagurinn
14.07.13 - 14.07.13
Ferðafélag Árnesinga
27.07.13 - 27.07.13
Höfn í Hornafirði
02.08.13 - 04.08.13
Höfn í Hornafirði
02.08.13 - 04.08.13
Sumar á Selfossi og Delludagur
08.08.13 - 11.08.13
Meistaradeild Olís á Selfossi
09.08.13 - 11.08.13
Aldamótahátíð á Eyrarbakka
10.08.13 - 11.08.13
Ferðafélag Árnesinga
24.08.13 - 24.08.13
Ferðafélag Árnesinga
07.09.13 - 07.09.13
Brúarhlaupið á Selfossi
07.09.13 - 07.09.13
Ferðafélag Árnesinga
21.09.13 - 21.09.13
Ferðafélag Árnesinga
05.10.13 - 05.10.13
Ferðafélag Árnesinga
19.10.13 - 19.10.13
Safnahelgi á Suðurlandi
01.11.13 - 03.11.13
Ferðafélag Árnesinga
02.11.13 - 02.11.13
Jólaljósin kveikt í Árborg
14.11.13 - 14.11.13
Ferðafélag Árnesinga
16.11.13 - 16.11.13
Jólatorgið opnar
07.12.13 - 07.12.13
Ferðafélag Árnesinga
11.12.13 - 11.12.13