Menning
Menningin byggir á gömlu bændamenningunni eins og hún gerðist best en Sunnlendingar eru líka opnir fyrir nýjungum. Þingvellir og Skálholt eru menningarstaðir að fornu og nýju. Þingvellir eru komnir á heimsminjaskrá. Þar var Alþingi háð, elsta þing í heimi. Í Skálholti er klassísk tónlist í hávegum höfð á fjölda tónleika og á Kirkjubæjarklaustri eru haldnir sumartónleikar.
Njóta má hefðbundinnar kirkjutónlistar í litlum sveitakirkjum, t.d. í Odda sem er einn elsti kirkjustaður landsins, og Strandarkirkju sem fjöldi fólks í nauð hefur heitið á og haft gæfu af. Sögusetrið á Hvolsvelli hefur Njálssögu í brennidepli. Brydebúð í Vík er menningarstaður og í Kirkjubæjarstofu á Klaustri er rannsóknasetur náttúru og menningar í Skaftárþingi. Listsýningar eru í Hveragerði, Skálholti og á Selfossi. Síðast en ekki síst endurspeglar gróskumikið mannlíf þá verklegu menningu sem ætíð hefur verið í hávegum höfð á Suðurlandi.