Vatnsholt er nýuppgerður fallegur sveitabær sem stendur við Villingaholtsvatn. Frá Vatnsholti er eitt víðasta útsýni í byggð á landinu. Þar sést vel til Vestmannaeyja, Eyjafjallajökuls, Tindfjalla, Heklu og Hellisheiðar. Vatnsholt er í aðeins 16 km fjarlægð frá Selfossi , 8 km frá Þjóðvegi 1 og ca 60 km frá Reykjavík.
Við bjóðum upp á notalega aðstöðu fyrir ferðamenn, hjón, einstaklinga eða fjölskyldur sem vilja hvíla sig og njóta þess sem Suðurland hefur upp á að bjóða.
Vatnsholt er fjölskylduvænn staður þar gestum gefst kostur á að kynnast lífinu í sveitinni.Á bænum eru hundar, hestar, kettir, kanínur, hænur, kindur og holdakýr.
Hægt er að leigja bát og veiðistangir til að veiða í Villingaholtsvatni og/eða fuglaskoðun.
Reiðhjól eru einnig til leigu á staðnum fyrir þá sem vilja skoða Flóann á eigin afli.
Stórglæsilegt leiksvæði fyrir börn og fullorðna, með veglegum útileiktækjum.
Frábær aðstaða fyrir allt að 20-30 gesti í glæsilegum íbúðum og/eða björtum og notalegum herbergjum ásamt sameiginlegu eldunar og setustofum, sólpalli með heitum potti, grilli og útihúsgögnum. Við gerum okkar besta til að gera dvölina ánægjulega.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.