Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

Fjallaskálar, Tjaldsvæði
Mörkin 6, 108 Reykjavík
999, Hálendi
fi@fi.is
http://www.fi.is
568-2533
568-2535
0
0
75

Skagfjörðsskáli stendur í mynni Langadals á Þórsmörk, á sléttri grund austan lækjarins, skammt frá Krossá. Frammi fyrir húsdyrum stendur Valahnúkur en þangað ganga þeir sem vilja sjá næsta nágrenni. Meðal áhugaverðra staða í nágrenni má nefna Stórenda, Stangarháls, Hamraskóga, Húsadal, Tindfjallajökul og Eyjafjallajökul. Gönguleiðir eru fjölbreyttar og fagrar og möguleikar miklir og m.a. ljúka flestir göngu um Laugaveginn í Langadal.
Skálinn er á tveimur hæðum, á neðri hæð eru tvö lítil eldhús, stór matsalur og tvær svefnstofur auk rúmgóðrar forstofu. Á efri hæð eru svefnrými með kojum. Alls rúmast 75 manns í kojum. Auk gistiskála er gott hreinlætishús með vatnssalernum og sturtum, viðdvalarhús fyrir dagsgesti, lítill svefnskáli (fyrir 2 - 4) og verslunarhús. Skálinn er kyntur með olíuvélum, sem einnig eru notaðar til eldamennsku. Þar eru pottar, pönnur og leirtau og skálaverðir á sumrin. Sími frá 15. maí til 30. september er  893 1191.

 

GPS: N63°40,960 W19°36,860 Skagafjörðsskáli í Langadal, Þórsmörk.  Gas til eldunar, vatn, wc, útigrill.