Opnunartími

Allt árið
Gistiheimili, Sumarhús, Einkagisting
Eyrargata 37a
820, Eyrarbakki
898-1197
482-1197
2
4
2

Suðurgata er lítið rómantískt ástarhreiður til leigu í uppgerðu gömlu húsi í aðeins 40 mínútna fjarlægð frá Reykjavík.
Um ræðir tvö svefnherbergi, stofu með sjónvarpi, útvarpi og geislaspilara ásamt eldhúsi með öllu tilheyrandi. Í kjallara er svo glæsilegt rómantískt baðherbergi með baðkari úti á miðju gólfi og ruggustól við hliðina, mikið af kertum og baðolíum er á staðnum. Uppábúin rúm og handklæði fylgja.
Húsið er staðsett á sjávarlóð við sjóvarnargarðinn svo það er upplagt að fá sér göngutúr í fjörunni og anda að sér heilnæmu sjávarlofti. Tilvalin gisting fyrir par og alla þá sem vilja komast í rólegt, rómantískt og afslappað umhverfi. Glæsileg aðstaða og notaleg umgjörð.

Sjávarrétta veitingastaðurinn Rauða húsið er í fimm mínútna göngufæri.

 

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.