Sólheimahjáleiga er sveitabær sem býður upp á notalega gistingu allt árið. Lögð er áhersla á að gestir geti upplifað daglegt líf í sveitinni og fái persónulega þjónustu. Gestgjafar hafa áratuga reynslu af því að þjónusta ferðamenn.Í nálægð við bæinn eru margir vinsælir ferðamannastaðir eins og t.d. Vík í Mýrdal, Reynisfjara, Dyrhólaey, Sólheimajökull og Skógar. Einnig er hægt að fara í dagsferðir t.d. í Skaftafell og Jökulsárlón, til Vestmannaeyja eða í Þórsmörk.Ýmiskonar afþreying er í boði í nágrenninu, t.d. Byggðasafnið í Skógum, jeppa- og sleðaferðir og hestaleigur.Boðið er upp á gistingu án baðs í 4 herbergjum í gömlu íbúðarhúsi, þar eru 2 baðherbergi, eldunaraðstaða og setustofa. Þá eru 10 herbergi í nýlegu gistihúsi öll með sér baðherbergi.Morgunverður í boði og einnig máltíðir ef bókað er með fyrirvara.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.