Skálholtsskóli starfar sem fræðslu- og menntasetur kirkjunnar. Hefur starf skólans verið skipulagt þannig að það mæti sem best þörfum hins flókna samfélags sem við lifum í við upphaf nýrrar þúsaldar. Haldin eru námskeið af ýmsu tagi, málþing, ráðstefnur, tónleikar, listsýningar og kyrrðardagar sem skólinn eða hinar ýmsu stofnanir samfélagsins efna til og skipuleggja.
Í Skálholtsskóla eru fræðslu- og ráðstefnusalir sem rúma um 80 manns en þeim má skipta í þrjá minni sali. Matsalurinn með bókakaffi rúmar 120 manns, vistleg setustofa er með arni og sjónvarpi. Í skólanum eru 36 gistirými og þar að auki er gistiaðstaða fyrir 35 í öðrum húsakynnum staðarins. Boðið er upp á uppbúin rúm sem svefnpokagistingu.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.