Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

Fjallaskálar, Tjaldsvæði
Mörkin 6, 108 Reykjavík
999, Hálendi
fi@fi.is
http://www.fi.is
568-2533
568-2535
0
0
2
120

Skálar F.Í. standa við mynni Nýjadals, SV undan Þvermóði, á melbarði sunnan Nýjadalsár, við bílslóðina yfir Sprengisand. Þau standa í um 800 m h.y.s. og hið fyrra reist 1967. Það er timburhús á tveimur hæðum, á neðri hæð er forstofa, eldhús og svefnskáli og á efri hæð svefnpallur. Í nýrra húsinu er eldhús, skálavarðarherbergi og svefnsalur niðri og svefnloft á efri hæð. Húsin rúma samtals 120 manns í kojum og á dýnum. Í þeim báðum eru eldavélar, pottar og pönnur en ekki önnur eldunaráhöld né leirtau. Þar er sorphirða og skálavarsla á sumrin. Vatnssalerni og sturtur eru í sérstöku húsi. Frá húsunum blasir við suðvesturhlíð Tungnafellsjökuls og skammt er að ganga inn í blómastóð Nýjadals. Einnig er auðvelt að ganga þaðan upp á Tungnafellsjökul og leiðin er greið um Mjóháls austur í Vonarskarð. Sími frá 1. júlí til 31. ágúst er 860-3334

Einnig er auðvelt að ganga þaðan upp á Tungnafellsjökul og leiðin er greið um Mjóháls austur í Vonarskarð. Sími frá 1. júlí til 31. ágúst er 860-3334

GPS: N64°44,130 W18°04,35
Við Sprengisandsleið.  Gas til eldunar, vatn, wc, útigrill.