Hestheimar í Ásahreppi er ferðaþjónustubýli þar sem boðið er upp á gistingu í notalegu gestahúsi með heitum potti. Í aðalbyggingunni eru 8 tveggja manna herbergi, heitur pottur.Einnig eru 2 ný gestahús, 30 fm. , með sérbaði og eldhúsi fyrir 2-6 manns. Uppbúin rúm fyrir 42 manns. Morgun- og kvöldverður í boði. Einnig er svefnpokagisting á hlöðulofti fyrir 20 manns, snyrtingar og fullbúið eldhús. Rúmgóður matsalur fyrir allt að 180 manns er undir sama þaki og reiðhöllin. Tilvalið fyrir alls konar uppákomur, s.s. hvata- og óvissuferðir, dansleiki, línudans og kvöldverði. Hestaleigan er opin allt árið. Margar góðar reiðleiðir í nágrenninu og lengri hestaferðir í boði yfir sumarið. Hestasala. Sveitadvöl. Heimsókn á hrossaræktarbýli á Suðurlandi. Reiðkennsla og helgarreiðnámskeið. Vikureiðnámskeið fyrir 8-12 ára börn á sumrin, gisting og fullt fæði. Eingöngu réttindakennarar sjá um kennsluna. Hestheimar eru við veg 281, 3 km frá þjóðvegi 1, 50 mín. akstur frá Reykjavík. Skilti og fánar merkt Hestheimum við þjóðveginn.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista, bókana. og tilboða fyrir hópa.