Grímsborgir Luxury Guest House er staðsett á glæsilegum stað í kjarrivöxnu landi við Sogið í Grímsnesi. Umhverfis húsin er falleg og stór verönd gasgrilli fylgir hverju húsi. Heitur pottur er við hvert hús. Einstaklega glæsileg hús að innan sem utan í kyrrlátu umhverfi á bökkum Sogsins. Alls eru 6.hús leigð út með 29 herbergjum og fallega uppábúin rúm fyrir 59 manns .Húsin bjóða upp á mjög góða aðstöðu til ýmiss konar funda, námskeiðishalds , afmælisveislna, bekkjarmóta. Rúmgott fyrir alla fjölskylduna . 45 mín. keyrsla frá Reykjavík
Veitingahúsið Grimsborgir Restaurant tekur 60 manns í sæti. Kjörinn staður til að halda upp á afmælið, brúðkaupsveislu, ættarmót og ýmiskonar mannfagnaði.
Hringið í síma 555 7878 eða sendið okkur e-mail guesthouse@grimsborgir.com og fáið nánari upplýsingar um verð og annað sem viðkemur veislunni.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.