Opnunartími

Allt árið
Upplýsingamiðstöðvar, Einkagisting, Sýningar, Handverk og hönnun, Kaffihús
Háholt 1
840, Laugarvatn
486-1016
486-1017
847-0805
3
8

Gallerí Laugarvatn var stofnað 2003 að Háholti 1 Laugarvatni af hjónunum Þuríði Steinþórsdóttur og Jóel Fr. Jóssyni.
Þuríður er með sína vinnustofu á staðnum þar sem hún vinnur með járn og sömuleiðis er Jóel með sína vinnustofu á staðnum þar sem hann er bólstrari og húsgagnasmiður og vinnur meðal annars við að gera upp húsgögn.
Gallerí Laugarvatn er verslun og kaffihús með íslenska handverks og listmuni, úr leir, gleri, tré, ull, leðri, steini, járni o.fl.
Einnig erum við með á sumrnin, grænmetismarkað og matvöru beint frá býli s.s. lambakjöt ,silung, sultur o.fl.
Við bjóðum upp á að taka á móti stórum og litlum hópum þar sem hægt er að setja saman ýmisskonar óvissupakka bæði í samvinnu við aðra á staðnum sem bjóða upp á allslags afþreyingu s.s. hellaferðir, heilsu og hópeflingu, paintball o.fl.
Einnig bjóðum við upp á námskeið í járnaföndri þar sem hægt er að koma í mislangan tíma og búa til allsk. litla hluti eins og t.d.  lyklakippur, og allt  uppí stórar kertakrónur eða lampa – allt eftir stærð og tíma hópanna.
Einnig er bara hægt að heimsækja  galleríið og  njóta íslenska handverksins í fallegu umhverfi og njóta góðra veitinga í leiðinni.
Galleríið opnaði bed and breakfast árið 2010, sem eru  3, 2jamanna herbergi  með sameiginlegu baði.
Þessa aðstöðu getum við boðið uppá í sambandi við námskeið í járni, á vorin ,haustin og veturna.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana .

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana .
Opnunartími galleríVirkir dagar:Laugardagar:Sunnudagar:
 1. maí - 30. sept.:13:00-18:00
13:00-18:0013:00-18:00
 1. okt.-30. apr.:-
13:00-18:00
13:00-18:00
Galleríið er kaffihús og verslun með íslenskt handverk og listmuni frá svæðinu í kring. Galleríið er einnig opið á öðrum tímum eftir samkomulagi. Við tökum líka á móti hópum í heimsókn, léttar veitingar og óvissuferðir. Gistingin er opin allt árið.