Við hvetjum þig til að heimsækja okkur í Upplýsingamiðstöðina í Árborg, Selfossi.Við bjóðum upp á fjölbreytta þjónustu í samstarfi við bókasafnið þar sem Upplýsingamiðstöðin er til húsa: upplýsingaráðgjöf fyrir ferðamenn (maí-ágúst), ókeypis landakort með þjónustulistum, bækur, landakort og póstkort til sölu, internet aðgangur fyrir 150 kr / hálftíminn, skiptibækur á ensku og íslensku, ljósritun, hotspot fyrir fartölvuna þína og síðast en ekki síst; hjálpsamt stafsfólk!