Tilgangur Markaðsstofu Suðurlands er að vera í fararbroddi í sameiginlegu markaðs- og kynningarstarfi fyrir Suðurland bæði innanlands og utan með áherslu á að auka atvinnustarfsemi og gjaldeyristekjur. Kostir Suðurlands til búsetu og ferðalaga eru hafðir að leiðarljósi og stuðlað er að aukinni eftirspurn eftir vöru og þjónustu. Lögð er áhersla á að styrkja ímynd Suðurlands, standa fyrir og styðja við fræðslu, ráðgjöf og nýsköpun. Tekið er tillit til allra atvinnugreina landshlutans og sérkenna einstakra svæða frá austri til vesturs því samstarf allra atvinnugreina og svæða er lykilatriði við að ná árangri í eflingu Suðurlands.

Markaðsstofa Suðurlands er í farsælli samvinnu við Upplýsingamiðstöð Suðurlands sem staðsett er í Hveragerði.
Ef þú hefur einhverjar spurningar um ferðaþjónustu og viðburði innan landshlutans, hafðu þá samband við:

Upplýsingamiðstöð Suðurlands
Sunnumörk 2
810 Hveragerði
s. 483 4601
tourinfo@hveragerdi.is


Verið velkomin á Suðurland og njótið dvalarinnar!

Markaðsstofa Suðurlands
Fjölheimar - Þekkingarsetur Suðurlands
við Tryggvagarð
800 Selfossi
s. 560-2030
info@south.is 


Davíð Samúelsson framkvæmdastjóri
s. 560-2044

Nánari upplýsingar um ýmsa viðburði á Suðurlandi og þjónustu markaðsstofunnar sjá: www.markadsstofa.is