Nokkur heilræði um akstur
Hér hefur verið safnað saman ýmsum heilræðum sem vert er að hafa í
huga þegar akstur er annars vegar. Sumum kann að finnast þetta
sjálfsagðir hlutir sem óþarfi sé að tíunda en eins og allir vita þá er
góð vísa aldrei of oft kveðin.
Framúrakstur eitt það hættulegasta í umferðinni
Framúrakstur krefst alltaf skýrrar hugsunar og er eitt af því
hættulegasta sem menn gera í umferðinni. Brýnt er að menn reyni ekki
framúrakstur nema aðstæður séu fyrir hendi. Í því sambandi er mikilvægt
að aka ekki framúr þar sem óbrotnar (heilar) línur hafa verið málaðar á
veg til þess að gefa ökumönnum til kynna að þar sé stórhættulegt að aka
framúr.
Búpeningur við vegi
Víða er búpeningur meðfram vegum og því þarf ávallt að vera vakandi
fyrir búpeningi í vegkanti. Sérstök hætta er á ferðum ef lömb og kind
eru sitt hvoru megin við veg því algengt er að lömb hlaupi skyndilega
yfir veg þegar bíll nálgast. Ef búpeningur birtist skyndilega á vegi
þarf að varast að stofna eigin lífi og annarra í voða með óyfirveguðum
viðbrögðum svo sem að aka hugsunarlaust út af vegi þar sem aðstæður
leyfa það ekki. Þetta á að sjálfsögðu einnig við um fugla og önnur
smádýr. Líta verður vel fram á veginn.
Skil klæðningar og malarvegar
Alltaf þarf að aka með gætni milli skila á malarvegi og malbiks eða
klæðningar. Oft myndast hættulegir kantar eða djúpar holur við skilin.
Einnig geta hættulegir kantar myndast við vegaxlir, ræsi, skurði og
ristarhlið. Á blindhæðum eða rétt neðan við þær má ekki stoppa.
Haldið jöfnum hraða
Öruggast er að halda jöfnum hraða og sem næst hámarkshraða. Gætið
þæess þó að miða alltaf hraða við aðstæður hverju sinni. Of mikill hraði
eða of lítill miðað við aðstæður skapar alltaf hættu. Bensíneyðsla er í
lágmarki ef hraði er jafn og á um 80 - 90 km/klst.
Mannleg mistök
Algengasta orsök umferðaslysa eru mannleg mistök. Helst er um að ræða
vanmat á hraða og fjarlægð (hraðablinda), mistúlkun aðstæðna,
athyglisbrest eða rangt mat á fyrirætlunum annarra. Alltaf þarf að hafa
fulla athygli og raunsæjar hugmyndir um hættur og aldrei taka óþarfa
áhættu í umferðinni.
Mætingar
Dragið ávallt úr hraða við mætingar, sérstaklega á malarvegum.
Steinar þyrlast upp en hafa lítinn eigin hraða. Hraði bílanna sjálfra
ákvarðar hversu hratt steinar lenda á framrúðu.
Bil á milli bíla
Hafið hæfilegt bil á milli bíla og vera ávallt við því búinn að
ökumenn fyrir framan okkur þurfi af einhverjum ástæðum að draga úr ferð,
t.d. vegna óvæntra hindrana eða einfaldlega vegna þess að þeir ætla að
beygja á vegamótum, eða inn á vegarslóða. Þegar slíkir vegarslóðar eru
lítið áberandi eykst hættan og sá sem ætlar að beygja inn á þá verður að
gefa þeim sem á eftir honum koma merki í tæka tíð með því að stíga
nokkrum sinnum á hemlana og setja stefnuljósið á með löngum fyrirvara.
Bil í næsta bíl á að vera lengra eftir því sem hraðinn er meiri á
veginum.
Blindhæðir
Farið alltaf vel á hægri hluta vegar yfir blindhæðir og draga úr
hraða. Blindhæðir eru ekki alltaf merktar sérstaklega á fáförnum vegum
fjarri hringveginum. Á eða við blindhæðir, eða annarsstaðar þar sem
vegsýn er skert, má ekki stoppa því það getur valdið mikilli hættu.
Farsíma við akstur
Forðast skal að tala í farsíma við akstur. Ef nauðsynlegt er að nota
síma skal stöðva bílinn afsíðis og ljúka erindinu. Þótt handfrjáls
búnaður sé notaður er ákveðin truflun af notkun símans, við að hringja
eða svara auk þess sem mikilvægt eða krefjandi símtal getur truflað
athygli ökumanns.
Einbreiðar brýr
Aka þarf sérstaklega varlega að einbreiðum brúm og draga úr
ökuhraða. Tryggja að enginn komi samtímis á móti. Sú almenna regla
gildir að jafnaði að sá sem fyrstur kemur að brú fari fyrstur yfir. Sá
sem bíður fer vel út á vegbrún og setur stöðuljósin á.
Gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk
Aka þarf varlega framhjá gangandi vegfarendum og hjólreiðafólki,
sérstaklega þar sem hætta er á steinkasti og aurbleytu. Ef ekið er með
tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi eða aðra eftirvagna sem ná útfyrir
hliðar bifreiðar skal varast að aka of nálægt þeim.
Fylgjast vel með þar næsta bíl á undan
Þegar ekið er á vegum þar sem hraði er mikill og nokkur umferð verður
að fylgjast vel með þar næsta bíl á undan. Auðvelt er að bregðast við
einhverju óvæntu hjá bílstjóra í næsta bíl, en ef eitthvað fer úrskeiðis
hjá ökumanni þarnæsta bíls er erfitt að bregðast við. Akið með framsýni
og fyrirhyggju.
Bílalest
Þegar bílalest myndast ætti sá sem fremstur fer að víkja út á hægri
kant og hleypa framúr. Ef hann gerir það ekki og framúrakstur er
nauðsynlegur skal alltaf næsti bíll á eftir hægfara bílnum hefja
framúraksturinn og svo koll af kolli. Í raun er það annar og þriðji bíll
sem myndar bílalestina. Treysti ökumenn þeirra sér ekki framúr þeim
fremsta, þurfa þeir að hafa það mikið bil að þeir sem á eftir koma geti
komist inn á milli í eðlilegum framúrakstri.
Bilaður bíll
Ef bíll bilar á vegi skal hættuljós (viðvörunarljós) sett á og reynt
að koma bílnum vel út á vegöxl og koma viðvörunarþríhyrningi fyrir um
100 metrum aftan við bifreið til að vara aðra ökumenn við.
Þreyta og syfja
Þreyta og syfja ökumanna veldur mörgum slysum. Ef svefn sækir á er
nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir. Best er að stoppa á öruggum
stað, fara út úr bílnum teygja úr sér og fá ferskt loft í lungun. Góð
loftræsting inni í bílnum (niðurskrúfaðar rúður) skipta miklu máli.
Sumir hafa súran eða beiskan brjóstsykur tiltækan, en hver og einn
ökumaður þekkir hvað gagnast honum best við þessar aðstæður.
Farþegi í framsæti ætti að forðast að sofna, því með því móti hefur
hann verulega svæfandi áhrif á ökumann. Stórhættulegt er fyrir
framsætisfarþega að halla sætisbaki aftur og sofna. Við þær aðstæður
koma eiginleikar bílbeltisins alls ekki að tilætluðum notum.
Hugið um börnin
Ef börn eru með í för, reynið þá að finna áningastað þar sem
leikvöllur er eða stað sem býður upp á leik t.d. þar sem fjara er.
Þrjátíu til fimmtíu mínútna stopp á leiðinni í fríið getur gert
gæfumunin fyrir góða ferðaskapið.
Hafið með ykkur nesti í lengri ferðir og finnið góðan áningastað til
þess að borða það. Ef börn eru með fá þau miklu meiri útrás fyrir orku
sína að borða nesti úti í náttúrunni heldur en að sitja stillt á
veitingastað.
Heimild: Umferðarstofa o.fl.