Gagnlegar upplýsingar


Upplýsingamiðstöð Suðurlands Hveragerði

Upplýsingamiðstöð Suðurlands er staðsett í Hveragerði eða 38 km frá Reykjavík.
Þar getur þú nálgast upplýsingar fyrir ferðalag þitt á Suðurlandi.
Bæklingar, ferðakort og internet. Þar er einnig hægt að upplifa jarðskjálfta sem er 6.6 á ricter og sjá sprungu sem er í gólfinu og upplýst, sem talin er vera 4000 – 5000 ára gömul. Opið sumar Mánudaga - föstudaga 09:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 - 14:00

 

Upplýsingamiðstöð Árborgar á Selfossi

Upplýsingamiðstöð Árborgarsvæðisins á Selfossi
Upplýsingamiðstöðin er staðsett í bókasafninu á Selfossi. Selfoss er um 57 km til austurs frá Reykjavík. Í upplýsingamiðstöðinni færðu bæklinga og kort og allar þær upplýsingar sem þú þarft til að ferðast um svæðið. Þar er hægt að komast í tölvu sem tengd er á netið og þar er þráðlasut netsamband til afnota fyrir fartölvueigendur.
Opnunartími að sumrinu er sem hér segir: Klukkan 10:00-19:00 í miðri viku og klukkan 11:00-14:00 á laugardögum.

 

Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Hvolsvelli

Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Hvolsvelli er í Sögusetrinu á Hvolsvelli, Hvolsvöllur er í um 106 km fjarlægð í austur frá Reykjavík. Í upplýsingamiðstöðinni geta ferðamenn fengið allar þær upplýsingar um svæðið, sem til þarf. Þar liggja frammi bæklingar, kort og þar hægt er að komast á netið. Sumaropnun: Alla daga frá klukkan 09:00 – 19:00