Ferðaupplýsingar um Suðurland

Á Suðurlandi finnur þú þá gistingu sem þér hentar hverju sinni. Hér eru hótel bæði stór og smá, allt frá fullkomnum ráðstefnuhótelum til lítilla og persónulegra sveitahótela. Gistiheimili, bændagistingu á sveitabæjum, og gistingu í smáhýsum er víða að finna. Þá eru nokkur góð tjaldsvæði á Suðurlandi, oft í tengslum við aðra þjónustu. Til fjalla eru nokkrir staðir sem bjóða góða gistingu allt frá svefnpokagistingu til lúxus hótelherbergja, einnig eru þar víða hefðbundnir fjallaskálar, þar sem hægt er að kaupa svefnpokapláss.

Veitingastaðir af mörgum gerðum eru fjölmargir og standa þeir margir hverjir fyrir rómuðum árstíðabundnum veitingum svo sem þorrablótum, villibráðar – og jólahlaðborðum þar sem dekrað er við gesti og gangandi í mat og drykk. Ef þú vilt slaka á getur þú fundið lítinn, notalegan og persónulegan stað, jafnvel sveitabæ þar sem bjóðast þjóðlegar flatkökur, kleinur, rjómapönnukökur og súkkulaði drukkið með. Mjög hefur færst í vöxt að fyrirtæki haldi ráðstefnur á Suðurlandi, fjarri ysi og þysi  höfuðborgarinnar en þó í seilingarfjarlægð.