Opnunartími

Allt árið
Ferðaskipuleggjendur, Dagsferðir, Bátaferðir, Hvalaskoðun, Sjóstangaveiði
Suðurgerði 4
900, Vestmannaeyjar
www.vikingtours.is
488-4884
488-4888

Vikingtours rekur ferðamannabátinn Víking til útsýnisferða við Vestmannaeyjar ásamt sex hópferðabifreiðum sem taka frá 18 manns og upp í 58 manns hver rúta. Einnig rekum við kaffihúsið og upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn í Café Kró.

 

Vikingur: sérhannaður ferðamannabátur byggður eftir ýtrustu kröfum ferðamannageirans og getið hefur sér gott orð á því sviði við Vestmannaeyjar. Báturinn er allur hinn glæsilegasti og tekur 50 farþega. Hann er búinn tveimur 360 hp vélum og ganghraði hans er um 22 mílur. 

 

Café Kró: Alvöru kaffihús með internet þjónustu, tilboð í ferðapakka: Skólaferðalög, ferðalög eldri borgara, hópferðir sem innihalda: Gistingu, mat, afþreyingu og ferðir til og frá Eyjum. Aðeins eitt símanúmer sem þú þarft að hringja í (+354) 488 4 884 

 

Við bjóðum upp á útsýnisferðir um Eyjuna með leiðsögn frábærra leiðsögumanna. Þekking og þjónustulund er okkar vörumerki í þessum ferðum og getum við boðið upp á allt að tvöhundruð sæti í einu.

Sjáið heimasíðu fyrirtækisins vegna upplýsinga um ferðir.