Opnunartími

01/06 - 15/09
Söfn, Sýningar, Setur og menningarhús, Gestastofur
Gunnarsholt
851, Hella
www.land.is
488-3000

Í Sagnagarði, sem var opnaður 2011, er sögu gróður- og jarðvegseyðingar á Íslandi gerð skil í máli og myndum. Sagt er frá baráttu almennings við eldgosin og náttúruöflin og sögð saga frumherjanna og baráttu þeirra við eyðingaröflin. Rifjuð eru upp viðhorf og vantrú almennings til landgræðslu á árum áður og rakin 100 ára saga landgræðslustarfs á Íslandi. Jafnframt er lýst landgræðslustarfi nútímans og sagt frá helstu verkefnum í endurheimt landgæða og vistkerfa, í gróðurvernd og alþjóðlegu samstarfi.

Sagnagarður verður opinn virka daga, 1. júní - 15. september, kl. 9-16 og skv. nánara samkomulagi.

Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar.