Opnunartími

Allt árið
Ferðaskipuleggjendur, Gönguferðir, Vetrar afþreying, Dagsferðir, Fuglaskoðun, Hestaferðir, Jeppa- og jöklaferðir
Lambastaðir
801,
www.isct.is
777-0705

Iceland South Coast Travel er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að skipuleggja og selja jeppaferðir með faglærðum leiðsögumönnum. Algengustu ferðirnar eru um hálendi Íslands eins og til Landmannalauga, Fjallabaksleið eða í Þórsmörk, einnig sívinsælar dagleiðir eins og Gullni hringurinn, Vestmannaeyjar og Suðurstörndin. Á heimasíðunni okkar er að finna dagsferðir og skipulag þeirra í smáatriðum en við getum skipulagt ferð eftir áhugasviði hver og eins.

Við opnum nýtt gistiheimili að Lambastöðum í Flóahreppi í maí árið 2012. Í gistiheimilinu eru ellefu herbergi með sér baðherbergi, internet tengingu og heitum potti með náttúrulegu heitu vatni. Framreiddur er morgunverður og kvöldverður fyrir hópa ef pantað er fyrirfram. Húsdýr heimilisins eru í næsta nágrenni svo sem kindur, hestar, endur, gæsir og kanínur. Í nágrenni við gistiheimilið eru fjölmargir veitingastaðir, golfvellir, sundlaugar, söfn og fjölbreytt afþreying er í boði.
Vinsamlega hafið samband til að fá nánari upplýsingar.

Sími 777 0705
Netfang: info@lambastadir.is
Heimasíða: www.lambastadir.is

Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.