Byggðasafn
Byggðasafn var opnað í Gömlubúð árið 1980 en aðdraganda að stofnun þess má rekja allt til ársins 1964 er sýslunefnd kaus fimm manna nefnd til að vinna að undirbúningi safnsins. Starfsemi byggðasafnsins nú fer aðallega fram í Gömlubúð og Pakkhúsi. Einnig eru ýmsar aðrar starfsstöðvar tengdar safninu.
Sýningar á vegum Byggðasafns eru í Gömlubúð þar sem sjónum er beint að gamla bændasamfélaginu, búvélasafn er til sýnis og í kjallaranum er að finna smiðju eldsmiðsins Sigurðar Filipussonar. Í Pakkhúsinu sem stendur við höfnina er að finna sjóminjasafn í kjallara hússins. Í Miklagarði er svo Verbúðin þar sem sjá má vistarverur sjómanna og vinnukvenna sem bjuggu á vertíðunum í Miklagarði.
OpnunartímiByggðasafnið er opið allt árið um kring en yfir vetrarmánuðina þarf að gera boð á undan sér. Starfsmenn nýta veturinn til ýmissa verka en taka gjarnan á móti gestum og því gott að hafa samband í síma 470 8050 eða með því að senda tölvupóst á menningarmidstod@hornafjordur.isYfir sumarmánuðina er safnið opið á eftirfarandi tímum:15. maí – 15. september er safnið opið alla daga frá 13.00-17.00.