Gallerí Laugarvatn var stofnað 2003 að Háholti 1 Laugarvatni af hjónunum Þuríði Steinþórsdóttur og Jóel Fr. Jóssyni.Þuríður er með sína vinnustofu á staðnum þar sem hún vinnur með járn og sömuleiðis er Jóel með sína vinnustofu á staðnum þar sem hann er bólstrari og húsgagnasmiður og vinnur meðal annars við að gera upp húsgögn.Gallerí Laugarvatn er verslun og kaffihús með íslenska handverks og listmuni, úr leir, gleri, tré, ull, leðri, steini, járni o.fl.Einnig erum við með á sumrnin, grænmetismarkað og matvöru beint frá býli s.s. lambakjöt ,silung, sultur o.fl.Við bjóðum upp á að taka á móti stórum og litlum hópum þar sem hægt er að setja saman ýmisskonar óvissupakka bæði í samvinnu við aðra á staðnum sem bjóða upp á allslags afþreyingu s.s. hellaferðir, heilsu og hópeflingu, paintball o.fl. Einnig bjóðum við upp á námskeið í járnaföndri þar sem hægt er að koma í mislangan tíma og búa til allsk. litla hluti eins og t.d. lyklakippur, og allt uppí stórar kertakrónur eða lampa – allt eftir stærð og tíma hópanna. Einnig er bara hægt að heimsækja galleríið og njóta íslenska handverksins í fallegu umhverfi og njóta góðra veitinga í leiðinni.Galleríið opnaði bed and breakfast árið 2010, sem eru 3, 2jamanna herbergi með sameiginlegu baði.Þessa aðstöðu getum við boðið uppá í sambandi við námskeið í járni, á vorin ,haustin og veturna.Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana .